Hagstofan leiðréttir framkvæmdastjóra SI

Hag­stofan segir það rangt með farið hjá Sigurði Hann­essyni, fram­kvæmda­stjóra Samtaka iðn­að­ar­ins, að verð­bólga væri einu pró­sentu­stigi lægri ef reikni­að­ferð hefði ekki verið breytt.

Hagstofan leiðréttir framkvæmdastjóra SI
Sigurður Hann­es­son Fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins sagði verð­bólgu vera einu pró­sentu­stigi hærri en ef Hag­stofan mið­aði við eldri reikni­að­ferð. Mynd: Golli

Fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins sagði verð­bólgu nú vera einu pró­sentu­stigi hærri en ef Hag­stofan not­að­ist ennþá við eldri aðferð við mæl­ingu verð­lags.

Hag­stofan segir hins vegar litlu muna milli aðferða.

„Nú er verð­bólgan 4,3% og hefur verið býsna þrá­lát, ef við værum enn þá með gömlu aðferð­ina, þá væri verð­bólgan 3,3%, þá væri verið að lækka vexti og við værum í allt annarri efna­hags­legri stöðu,“ sagði Sigurður Hann­es­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins, í umræðum um efna­hags­mál í Silfrinu á RÚV í gær.

Hag­stofan birti í dag til­kynn­ingu á Facebook þar sem full­yrð­ing Sigurðar er sögð ekki stand­ast skoðun. 

„Full­yrð­ing um að árs­hækkun vísi­tölu neyslu­verðs hefði verið 3,3% með óbreyttri aðferð fyrir reikn­aða húsa­leigu stenst ekki,“ segir í til­kynn­ing­unni. „Hag­stofan hefur ekki gefið út mat á reikn­aðri húsa­leigu skv. eldri aðferð síðan í maí 2024 en út frá gögnum um vísi­tölu mark­aðs­verðs hús­næðis og gögnum um verð­tryggða vexti er ljóst að litlu …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Vinsamlegast birtið framreiknaða vísitölu samkvæmt eldri aðferð og bakreiknaða vísitölu samkvæmt nýrri aðferð eins langt aftur og mögulegt er svo hægt sé að bera breytingar á þeim saman og draga ályktanir af þeim á grundvelli réttra staðreynda.

    https://www.althingi.is/altext/erindi/157/157-38.pdf
    "Þrátt fyrir minni sveiflur er þessi aðferð þó langt frá því að vera gallalaus, einkum vegna þess að yfirgnæfandi meirihluti leigusamninga eru verðtryggðir sem leiðir af sér óhjákvæmilega víxlverkun milli mánaða. Mælikvarði sem mælir sig sjálfan getur aldrei talist marktækur. Þessum reikniaðferðum þarf því að breyta þannig að litið sé fram hjá áhrifum verðtryggingar til að stemma stigu við því að verðbólga geti orðið sjálfnærandi."

    https://hagstofas3bucket.hagstofa.is/hagstofan/media/public/2024/972997d4-e646-445f-8360-73670cc18e03.pdf
    "Töluverður hluti húsaleigusamninga fyrir íbúðarhúsnæði er með verðtryggingarákvæðum sem yfirleitt eru byggð á vísitölu neysluverðs en aðrar vísitölur, t.d. vísitala byggingarkostnaðar eru einnig notaðar. Í heild voru um tveir þriðju hlutar leigusamninga með slíkum verðtryggingarákvæðum um mitt ár 2024.
    Áhrif verðtryggingar í leigusamningum birtast með þeim hætti í húsaleiguígildislíkaninu að allir samningar sem innihalda slík ákvæði eru uppfærðir mánaðarlega í samræmi við samninginn. Þannig má segja að leigusamningar af þessu tagi leiði af sér óhjákvæmilega víxlverkun milli mánaða."
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár