Vilja hjólaleið á milli borgarinnar og Suðurnesja

Þingmenn stjórn­ar­flokk­anna kalla eftir því að efla hjóla­sam­göngur á Suð­vest­ur­horn­inu og yfir­völd í Reykja­nesbæ taka undir.

Vilja hjólaleið á milli borgarinnar og Suðurnesja
Reykja­nes­braut Þingmenn leggja til hjóla­leið á Suð­vest­ur­horn­inu. Mynd: Golli

Þingmenn úr röðum Við­reisnar, Sam­fylk­ingar og Flokks fólks­ins vilja að starfs­hópur verði mynd­aður sem leggi fram til­lögu um hjóla­leið á milli höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og Suð­ur­nesja fyrir 1. jan­úar 2027.

Pawel Bartoszek, þing­maður Við­reisnar, er fyrsti flutn­ings­maður þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unnar sem er nú stödd hjá umhverfis- og sam­göngu­nefnd Alþingis að lok­inni fyrstu umræðu.

„Tvö stærstu þétt­býl­is­svæði lands­ins, höf­uð­borg­ar­svæðið og Suðurnes, liggja í 50 kíló­metra fjar­lægð hvort frá öðru,“ segir í til­lög­unni. „Á milli þeirra eru engar nátt­úru­legar hindr­anir og leiðin liggur á lág­lendi. Því eru allar for­sendur fyrir góðri hjól­reiða­teng­ingu milli svæð­anna. Af henni hefur enn ekki orðið.“

Bent er á að hámarks­hraði á Reykja­nes­braut sé 90 km á klukku­stund en ferða­hraði þorra öku­manna sé á köflum hærri. „Samkvæmt alþjóð­legum við­miðum um hönnun hjóla­leiða getur veg­öxl Reykja­nes­brautar vart talist ásætt­an­leg hjóla­leið þegar tekið er mið af umferð­ar­þunga og umferð­ar­hraða á Reykja­nes­braut, hvað þá ef umferð­ar­hraði eykst enn frekar,“ segir í til­lög­unni.

…
Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár