Hlaut dóm fyrir að falsa sakavottorð til að leyna fyrri dómi

Karl­maður var dæmdur í fimm mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir að hafa falsað saka­vott­orð og sent það í ráðn­ing­ar­ferli til að leyna fyrri dómi í von um að fá starf.

Hlaut dóm fyrir að falsa sakavottorð til að leyna fyrri dómi

Karl­maður hlaut 5 mán­aða skil­orðs­bund­inn dóm í Hér­aðs­dómi Reykja­ness í októ­ber fyrir að falsa saka­vott­orð til að fela fyrri dóma sína þegar hann sótti um vinnu. Fyrir vikið gerð­ist hann sekur um skjala­fals.

Fyrir dómi sagð­ist mað­ur­inn hafa verið örvænt­ing­ar­fullur í leit að vinnu og gripið til þess að falsa saka­vott­orð og senda á mögu­legan vinnu­veit­anda með það fyrir augum að fá starf. 

Samkvæmt dómnum ját­aði mað­ur­inn brotið ský­laust. Hann sagð­ist hafa orðið fyrir höf­uð­höggi í slysi árið 2020 sem hafi haft mikil áhrif á hvata­stjórn hans og verið atvinnu­laus um tíma.

Maðurinn hafði áður hlotið tvo skil­orðs­bundna dóma fyrir lík­ams­árás sam­kvæmt 218. gr. almennra hegn­ing­ar­laga. Það var þó aðeins til að fela fyrri dóm­inn sem hann fals­aði saka­vott­orð, því síð­ari dóm­ur­inn féll eftir að skjala­föls­unin átti sér stað. 

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár