Meira en 70 milljarða hagnaður bankanna

Stóru íslensku við­skipta­bank­arnir þrír hafa sam­an­lagt hagn­ast um 73 millj­arða króna á árinu. Meiri hagn­aður og arð­semi var af rekstri bank­ana fyrstu níu mán­uði árs­ins en á sama tíma­bili í fyrra.

Meira en 70 milljarða hagnaður bankanna
Vel­gengni Íslensku bönk­unum vegnar vel. Mynd: Samsett / Heimildin

Heild­ar­hagn­aður Lands­bank­ans, Arion banka og Íslands­banka á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2025 nam sam­tals rúm­lega 73 millj­örðum króna, sam­kvæmt nýbirtum upp­gjörum bank­anna. Allir þrír bank­arnir sýna auk­inn hagnað og meiri arð­semi eig­in­fjár en á sama tíma­bili árið áður.

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 29,5 millj­arða króna eftir skatta á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, þar af 11,1 millj­arð króna á þriðja árs­fjórð­ungi. Arðsemi eig­in­fjár var 12,2 pró­sent, sam­an­borið við 11,7 pró­sent á sama tíma­bili árið 2024. Hreinar vaxta­tekjur bank­ans námu 49,4 millj­örðum króna og hreinar þjón­ustu­tekjur 9,2 millj­örðum króna. 

Hagnaður sem til­heyrir hlut­höfum Arion banka var 24,4 millj­arðar króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2025, sam­an­borið við 17,8 millj­arða króna á sama tíma­bili árið áður. Arðsemi eig­in­fjár var 16,0 pró­sent og hefur því auk­ist úr 12,2 pró­sentum árið 2024. Hreinn vaxta­munur var 3,3 pró­sent og hreinar þókn­ana­tekjur námu 13,1 millj­arði króna. Efna­hags­reikn­ingur bank­ans hefur stækkað um 7,3 pró­sent frá árs­lokum 2024. Bankinn bendir á að virkt skatt­hlut­fall hafi verið hátt, eða 28,8 pró­sent, vegna óhag­stæðrar sam­setn­ingar tekna.

Íslands­banki hagn­að­ist um 19,3 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2025, sam­an­borið við 18,0 millj­arða króna árið áður. Arðsemi eig­in­fjár var 11,5 pró­sent, sem er aukn­ing frá 10,9 pró­sentum árið 2024. Hreinar vaxta­tekjur bank­ans námu 40,1 millj­arði króna, sem er aukn­ing um 10,1 pró­sent milli ára. Virð­is­breyt­ing á fjár­eignum var jákvæð um 406 millj­ónir króna, sam­an­borið við jákvæða virð­is­breyt­ingu upp á 293 millj­ónir króna árið áður.

Sam­an­tekið sýna upp­gjör bank­anna sterka afkomu á árinu 2025. Arðsemi og vaxta­tekjur halda áfram að aukast, og Arion banki stendur upp úr með hæstu arð­semi eig­in­fjár meðal þriggja við­skipta­bank­anna. Arion banki er sá eini sem var að fullu í eigu fjár­festa allt árið og er eft­ir­tekt­ar­verður munur á arð­semi og arð­sem­is­mark­miði sam­an­borið við Lands­bank­ann, sem nær alfarið í eigu íslenska rík­is­ins. 

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár