Forseti ASÍ sakar ríkisstjórnina um aðför að launafólki á Íslandi

Forseti Alþýðu­sam­bands Íslands, Finn­björn Her­mann­son, segir að nið­ur­skurð­ar­stefna rík­is­stjórn­ar­innar bein­ist gegn lág­tekju­fólki, leigj­endum og inn­flytj­endum. Hann kallar skerð­ingu á atvinnu­leys­is­bótum „aðför að launa­fólki“.

Forseti ASÍ sakar ríkisstjórnina um aðför að launafólki á Íslandi
Fast skotið Forseti ASÍ skýtur föstum skotum á bæði Kristrúnu Frosta­dóttur for­sæt­is­ráð­herra og Ingu Sæland félags­mála­ráð­herra. Mynd: Víkingur

Finn­björn A. Her­mann­son, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands, gagn­rýnir harð­lega fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórnar Kristrúnar Frosta­dóttur og segir að þar birt­ist for­gangs­röðun sem brjóti gegn grunn­stoðum íslensks vel­ferð­ar­sam­fé­lags. 

Í grein sem hann skrifar á Vísi í dag spyr Finn­björn hvaða sýn for­sæt­is­ráð­herr­ann hafi á það vel­ferð­ar­sam­fé­lag sem byggt hefur verið upp ára­tugum saman. Hann segir fram­göngu rík­is­stjórn­ar­innar benda til þess að ráð­herrar hafi hvorki sögu­lega yfir­sýn né virð­ingu fyrir þeirri sam­fé­lags­legu vinnu sem leiddi Ísland úr fátækt til vel­ferðar. 

„Í nið­ur­skurð­ar­fjár­lögum núver­andi rík­is­stjórnar er svo­nefndum „aðhalds­að­gerðum“ beint að íslensku launa­fólki og sér­stak­lega þeim hópum sem neðst standa í tekju­stig­anum,“ skrifar Finn­björn.

Hann nefnir að skerð­ing­arnar felist meðal ann­ars í stytt­ingu á bóta­tíma­bili atvinnu­leys­is­trygg­inga úr 30 mán­uðum í 18, óbreyttum barna­bótum og hús­næð­is­bótum þrátt fyrir verð­bólgu, auknum kostn­að­ar­hlut sjúk­linga í heil­brigð­is­kerf­inu og nið­ur­skurði í fram­halds­fræðslu og íslensku­kennslu.

„Þarna opin­ber­ast for­gangs­röðun rík­is­stjórn­ar­innar því allt eru þetta póli­tískar ákvarð­anir,“ segir hann. 

Ríkisstjórnin rjúfi samstarf og traust

Finn­björn segir að ákvörðun um að stytta bóta­tíma­bilið hafi verið tekin án sam­ráðs við verka­lýðs­hreyf­ing­una, þvert á hefð og sam­komu­lag sem hafi gilt frá miðri síð­ustu öld. 

„Þess í stað kýs ráð­herr­ann að splundra þrí­hliða sam­stafi aðila vinnu­mark­aðar og stjórn­valda með ein­hliða ákvörðun um rétt­inda­skerð­ingu atvinnu­leit­enda,“ skrifar hann.

„Almenn­ingur í land­inu getur ekki átt allt sitt undir vel­vilja stjórn­valda hverju sinni“

Hann bendir á að íslenskur vinnu­mark­aður sé sveiflu­kenndur og sveigj­an­legur, með lágar girð­ingar í kringum upp­sagnir, og að langt bóta­tíma­bil sé nauð­syn­legt við slíkar aðstæður. 

Kallar ákvörðunina aðför að launafólki

Finn­björn segir verka­lýðs­hreyf­ing­una reiðu­búna til að ræða umbætur í atvinnu­leys­is­trygg­inga­kerf­inu, en að rík­is­stjórnin hafi hafnað því sam­tali. Það sé hins vegar nauð­syn­legt að eiga sam­ráð um jafn stórar breyt­ingar og nú eru boð­aðar.

„Almenn­ingur í land­inu getur ekki átt allt sitt undir vel­vilja stjórn­valda hverju sinni – um slík rétt­indi hefur verið samið og samn­ingar skulu standa,“ segir Finn­björn.

„Einhliða ákvörðun rík­is­stjórnar Kristrúnar Frosta­dóttur um skerð­ingu atvinnu­leys­is­trygg­inga er aðför að launa­fólki á Íslandi, rétt­indum þess og kjörum. Verka­lýðs­hreyf­ingin getur hvorki sætt sig við form né inn­tak þeirrar ákvörð­unar,“ skrifar hann að lokum.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár