Lýsa einelti hjá embætti Ríkisendurskoðanda

Marka­leysi, klefa­tal og refs­ingar eru lýs­ingar nafn­lausra starfs­manna Rík­is­end­ur­skoð­anda á starfs­háttum stjórn­and­ans, í umfjöllun Rík­is­út­varps­ins.

Lýsa einelti hjá embætti Ríkisendurskoðanda
Rík­is­end­ur­skoð­andi Hlýtur harða gagn­rýni sem stjórn­andi í umfjöllun Rík­is­út­varps­ins. Mynd: Ríkisendurskoðun

Tæplega helm­ingur starfs­fólks hjá emb­ætti Rík­is­end­ur­skoð­anda hafði orðið vitni að „ein­elti, kyn­ferð­is­legri áreitni, kyn­bundnu áreiti eða ofbeldi“ á vinnu­staðnum, sam­kvæmt áhættu­mati stofn­un­ar­innar í fyrra, og 11% höfðu orðið fyrir því. Þetta kemur fram í umfjöllun Rík­is­út­varps­ins, þar sem vitnað er til þess að starfs­fólk lýsi „ófremd­ar­á­standi“.

Guð­mundur Björgvin Helgason, rík­is­end­ur­skoð­andi og yfir­maður stofn­un­ar­innar, er sjálfur sagður miðja umkvart­ana starfs­fólks og hefur hann sett mannauðs­málin beint undir sig. Þrír af fimm svið­stjórum stofn­un­ar­innar hafa verið í veik­inda­leyfi frá því í vor.

Guð­mundur Björgvin hefur verið í emb­ætti rík­is­end­ur­skoð­anda frá því í júní 2022. Rík­is­út­varpið greinir frá því að hann hafi verið vel lið­inn innan stofn­un­ar­innar, þar til hann tók við æðstu stöðu emb­ætt­is­ins. Þá hafi „

Rík­is­tú­varpið vísar til tveggja heim­ild­ar­manna innan stofn­un­ar­innar sem „lýsa ósæmi­legri og á tíðum ógn­andi hegðun rík­is­end­ur­skoð­anda, „klefatali“ og marka­leysi í hegðun.“

Frétta­stofan hefur eftir þeim að „rík­is­end­ur­skoð­andi eigi það til að refsa starfs­fólki sem honum er í nöp við. Þeir saka Guðmund Björgvin um að leka trún­að­ar­upp­lýs­ingum starfs­fólks og ítrekað láta falla niðr­andi ummæli um starfs­fólk.“

Rík­is­út­varpið greinir frá því að áhættu­mat á vinnu­staðnum í fyrra hafi sýnt að 41 pró­sent starfs­manna höfðu orðið vitni að „ein­elti, kyn­ferð­is­legri áreitni, kyn­bundnu áreiti eða ofbeldi“ í vinn­unni og 11 pró­sent orðið sjálfir fyrir því.

Í frétt RÚV segir að mæl­ingar hafi sýnt fallandi starfs­á­nægju hjá Rík­is­end­ur­skoð­anda. Í könn­un­inni Stofnun árs­ins fær stofn­unin ein­kunn­ina 3,97 af 5 mögu­legum fyrir mats­þátt­inn „stjórnun“ í fyrra, sem er þó langt frá því að vera versta ein­kunnin hjá rík­is­stofnun á þeim mæli­kvarða. Á mæli­kvarða vinnu­skil­yrða fær stofn­unin ein­kunn­ina 4,48, sem er sú 12. besta af öllum rík­is­stofn­unum í könn­un­inni. Þá fær stofn­unin ein­kunn­ina 4,23 þegar kemur að starfsanda.

Þessar upp­lýs­ingar birt­ast á vef Sameykis um Stofnun árs­ins, en í umfjöllun Rík­is­út­varps­ins virð­ist vitnað til ann­arra talna og segir þar að ánægja með stjórnun hafi mælst 3,65 en ekki 3,97.

Guð­mundur Björgvin segir í sam­tali við Rík­is­út­varpið að hann hafi ráð­ist í skipu­lags­breyt­ingar hjá emb­ætt­inu, sem hafi mælst mis­vel fyrir. Engar form­legar til­kynn­ingar hafi komið fram um ein­elti.

Þannig vitnar RÚV í tölvu­póst eins svið­stjóra sem er í veik­inda­leyfi, sem hann sendi til allra starfs­manna stofn­un­ar­innar. Starfs­mað­ur­inn lýsti því þar að hann hefði hafnað því að taka afstöðu til þess hvort hann tæki við breyttri stöðu. Þá hafi sviðs­stjórar í fram­kvæmda­stjórn farið fram á að utan­að­kom­andi aðili myndi gera áhættu­mat á stofn­un­inni, sem hún stóðst ekki á neinum af ell­efu mæli­kvörðum.

Rík­is­end­ur­skoð­andi er skip­aður af Alþingi og er „sjálf­stæður og engum háður í störfum sínum“, en arms­lengdin frá stjórn­völdum gerir um leið eft­ir­lit og fram­fylgd gagn­vart stofn­un­inni tor­sótt­ari. Þá gerir málið erf­ið­ara að emb­ætti Rík­is­end­ur­skoð­anda hefur það hlut­verk að gera stjórn­sýslu­út­tektir.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár