Dóra Björt vill verða formaður Pírata

Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, odd­viti Pírata, býður sig fram til for­manns í hreyf­ing­unni. Hún segir það hafa ruglað kjós­endur að stað­setja sig ekki á klass­ískum póli­tískum ás stjórn­mál­anna.

Dóra Björt vill verða formaður Pírata
Býður sig fram Dóra Björt býður sig fram til for­mennsku í Pírötum, sem hún vill þó að heiti annað. Gera má ráð fyrir að for­manns­fram­boðið þýði að hún muni bjóða sig fram til for­ystu í kom­andi sveita­stjórn­ar­kosn­ingum. Mynd: Bára Huld Beck

Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, odd­viti Pírata í borg­ar­stjórn Reykja­víkur, ætlar að bjóða sig fram til for­mennsku í hreyf­ing­unni. Hún vill stað­setja flokk­inn á miðj­unni og hefja umræður um að skipta um nafn. 

Fram­boðstil­kynn­ingin birt­ist á sam­fé­lags­miðlum í morgun en þar seg­ist hún bjóða sig fram til að taka þátt þeirri upp­bygg­ingu og end­ur­reisn sem er framundan. Flokk­ur­inn féll af Alþingi í síð­ustu kosn­ingum en á þrjá full­trúa í borg­ar­stjórn Reykja­víkur.

Í mynd­bandi sem hún birti segir Dóra Björt að það hafi ruglað kjós­endur að hafna því að stað­setja sig á póli­tískum ási. Flokk­ur­inn sé miðju­flokkur og eigi að stað­setja sig þar. Þá segir hún að nafnið Píratar hafi verið óska­barn síns tíma en að tíð­ar­and­inn hafi breyst. Því þurfi að taka umræðu um að skipta um nafn.

Dóra Björt hefur leitt Pírata í borg­inni í síð­ustu ár en hún bauð sig einnig fram í próf­kjöri flokks­ins fyrir síð­ustu þing­kosn­ingar. Hún hefur ekki gefið út hvort hún hygg­ist bjóða sig fram í kom­andi sveita­stjórn­ar­kosn­ingum en leiða má líkur að því að svo verði, fyrst hún býður sig nú fram til for­mennsku í flokknum. 

Ranglega kom fram, fyrst þegar fréttin birt­ist, að borg­ar­full­trúar Pírata væru tveir.
Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁJ
    Ástþór Jóhannsson skrifaði
    Hún mun aldrei geta losað sig við "Græna gímaldið" sem fólk í fjarlægum kjördæmum hrekkur upp úr martröð sinni að búið sé að byggja fyrir framan gluggana hjá því - í boði Pírata.
    Trúi ekki öðru en hún sé búin að vera og hverfi inn á öskuhaug stjórnmálanna næsta sumar.
    En hvað veit maður það eru ca. 14% kosningabærra sem greiða költinu hans Simma D atkvæði sitt, svo allt getur gerst. Þetta er Ísland þvert á flokka (hin hliðin), það má ekki gleyma því. Hreint ótrúlega klikkað.
    -1
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Illa komið fyrir pírötum ef Dóra Trump verður formaður en ekki við öðru að búast því píratar töluðu mikið og sögðust hafa háleit markmið en í ljós kom að þeir voru bara leyniklúbbur "Eg ræð" fólksinsl. En nýtt nafn væri líklega raunhæfara... "ég ræð" flokkurinn ?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár