Rannsókn hjá fyrirtækinu sem fann gullið í sorpinu

Þekktir fjár­festar eru með­eig­endur líf­eyr­is­sjóða í Terra, sem nú er rann­sakað fyrir sam­keppn­islaga­brot.

Rannsókn hjá fyrirtækinu sem fann gullið í sorpinu
Fyr­ir­tækið rann­sakað Valgeir Bald­urs­son er for­stjóri Terra.

Umdeilt fyr­ir­tæki varð enn umdeild­ara þegar emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara gerði í dag hús­leit hjá Terra umhverf­is­þjón­ustu hf. 

Fyr­ir­tækið er grunað um að hafa átt sam­ráð um skipt­ingu mark­aðar fyrir sorp­hirðu með öðru félagi, Kubbi ehf. á Ísafirði. Félögin þjón­usta sveit­ar­fé­lög lands­ins og hafa tekið þátt í útboðum. Rann­sóknin bein­ist að ætl­uðum brotum starfs­manna fyr­ir­tækj­anna og grund­vall­ast á kæru Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, sem vísar til greinar sam­keppn­islaga um bann við sam­stilltum aðgerðum til að koma í veg fyrir sam­keppni. 

Sex voru hand­tekin í dag og var gerð hús­leit á níu stöðum. Ekki er gefið upp nákvæm­lega um hvað ræðir, en sam­kvæmt heim­ildum snýr grun­ur­inn að því að félögin hafi skipt með sér svæðum.

Um er að ræða mikla hags­muni fyrir útsvars­greið­endur og sveit­ar­fé­lög. Þannig var velta félag­anna yfir 11 millj­arðar króna.

Millj­arða­við­skipti við sveit­ar­fé­lögVelta Terra umhverf­is­þjón­ustu var 9,3 millj­arðar króna í fyrra.
…
Kjósa
37
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár