Síminn tilkynnir aukinn hagnað á meðan Sýn fellur

Hagnaður Símans á þriðja árs­fjórð­ungi jókst um tæp 40 pró­sent miðað við síð­asta ár. Gengi hluta­bréfa Sýnar hafa aftur á móti fallið um tæp 30 pró­sent und­an­farna daga.

Síminn tilkynnir aukinn hagnað á meðan Sýn fellur

Hluta­bréf í Sýn hafa lækkað um 28 pró­sent frá því á fimmtu­dag þegar fyr­ir­tækið sendi frá sér afkomu­við­vörun. Gengi sam­keppn­is­að­il­ans Símans hefur á móti hækkað um tæp 6 pró­sent uund­an­farnar vikur. 

For­stjór­innMaría Björk er for­stjóri Símans.

Síminn kynnti afkomu sína á þriðja árs­fjórð­ungi í gær og reynd­ust tekjur 1,5 pró­sent hærri á fjórð­ungnum en á sama tíma­bili í fyrra. Tekjur af fjar­skipta- og sjón­varps­þjón­ustu lækk­uðu en tekjur af aug­lýs­inga­miðlun hækk­uðu hins vegar um 12,8 pró­sent.

Rekstr­ar­hagn­aður fyrir afskriftir og fjár­magnsliði (EBITDA) nam rúmum 1,8 millj­arði og lækk­aði frá sama tíma­bili en í fyrra en hrein fjár­magns­gjöld lækk­uðu hins vegar einnig. Hagnaður nam þannig 622 millj­ónum króna á fjórð­ungnum borið saman við 449 milljón króna hagnað á sama tíma­bili í fyrra en það er tæp­lega 40 pró­sent hækkun.

„Fjórð­ung­ur­inn ein­kennd­ist af traustum rekstri, vexti í afkomu og sókn nýrra tekju­stoða,“ er …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár