Áfram lækkar verðmæti Sýnar

Virði fjar­skipta- og fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins Sýnar hefur lækkað um nærri tvo millj­arða króna á síð­ustu dögum. Fyr­ir­tækið sér fram á mun minni rekstr­ar­hagnað en í fyrri áætl­unum.

Áfram lækkar verðmæti Sýnar
For­stjór­inn Herdís Dörfn Fjeld­sted er for­stjóri Sýnar.

Gengi hluta­bréfa í fjar­skipta- og fjöl­miðla­fyri­tæk­inu Sýn heldur áfram að lækka, þriðja dag­inn í röð. Verðmæti þess hefur dreg­ist saman um nærri 30 pró­sent frá því að Sýn sendi frá sér afkomu­við­vörun í síð­ustu viku. 

Gengi bréfa í félag­inu hefur aldrei verið jafn lágt og nú og stóð í 19,4 krónum á hlut í hádeg­inu. Virði bréfa var 27,2 á hlut áður en afkomu­við­vörun fyr­ir­tæk­is­ins var birt. Mark­aðsvirði félags­ins hefur þannig lækkað úr um 6,74 millj­örðum króna í um 4,81 millj­arð króna. 

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár