Snorri kjörinn varaformaður Miðflokksins

Snorri Másson, þing­maður Mið­flokks­ins, var kjör­inn vara­for­maður á lands­þingi flokks­ins í dag.

Snorri kjörinn varaformaður Miðflokksins

Snorri Másson, þing­maður Mið­flokks­ins, hefur verið kjör­inn vara­for­maður flokks­ins. Hann hlaut 136 af 201 greiddu atkvæði á lands­þingi Mið­flokks­ins sem fer fram um helg­ina á Hilton Nordica í Reykja­vík. 

Embættið hefur nú verið end­ur­vakið eftir að hafa legið niðri frá árinu 2020.

Ingi­björg Dav­íðs­dóttir, þing­maður og fyrr­ver­andi sendi­herra, var einnig í fram­boði og hlaut 64 atkvæði. Bergþór Ólason til­kynnti í gær að hann hefði dregið fram­boð sitt til vara­for­manns til baka. 

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son var end­ur­kjör­inn for­maður á þing­inu, en hann var einn í fram­boði til emb­ætt­is­ins. 

Í kynn­ing­ar­ræðu sinni á þing­inu sagði Snorri að hann tæki undir orð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­manns frá því á laug­ar­dag um að Ísland hefði villst af leið. „Við verðum að rétta úr kútnum. Við getum það. Ég vil axla mína ábyrgð í þeirri bar­áttu“ sagði Snorri. 

Sagði hann að þrátt fyrir stutta reynslu sína af stjórn­málum tryði hann að hann hefði þá reyslu sem þyrfti til að taka Mið­flokk­inn á næsta stig. 

Kjósa
-1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár