„Vart hefur orðið við algjöran viðskilnað við raunveruleikann“

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, var­aði við óheftu flæði hæl­is­leit­enda til Íslands í ræðu sinni á lands­þingi Mið­flokks­ins fyrr í dag. Hann talar afdrátt­ar­laust gegn inn­göngu í Evr­ópu­sam­bandið og vill að skyn­semi verði tekin fram yfir kreddur.

„Vart hefur orðið við algjöran viðskilnað við raunveruleikann“

Í ræðu sinni á lands­fundi Mið­flokks­ins í dag tal­aði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður flokks­ins, meðal ann­ars harð­lega gegn inn­göngu Íslands í Evr­ópu­sam­bandið, gegn upp­bygg­ingu Borg­ar­línu og fyrir bæði end­ur­saminni aðal­námskrá og skyn­semi þess að reyna á nýt­ingu olíu- og gasauð­linda á Íslandi.  

Fimmta lands­þing Mið­flokks­ins var sett í dag en það fer fram á Hilton Nordica í Reykja­vík um helg­ina. Á morgun munu flokks­menn velja sér nýjan vara­for­mann en þrír þing­menn flokks­ins eru í fram­boði – Bergþór Ólason, Ingi­björg Dav­íðs­dóttir og Snorri Másson.

Þjóðrækni og skynsemi

Í for­manns­ræðu sinni lagði Sig­mundur Davíð áherslu á mik­il­vægi þjóð­rækni – þess að Íslend­ingar gerðu sér grein fyrir því hverjir þeir væru og styrktu löng­un­ina til að vernda og efla land og þjóð – og þess sem hann kallar heil­brigða skyn­semi. 

„Pólitík og ákvarð­ana­taka í stjórn­málum hefur í auknum mæli markast af kerf­is­ræði, rétt­trún­aði og kreddum sem ganga jafn­vel svo langt að vart hefur orðið við algjöran við­skilnað við raun­veru­leik­ann,“ sagði Sig­mundur Davíð. „Þegar við leyfum okkur svo að beita skyn­sem­inni fremur en að elta ríkj­andi tíð­ar­anda eða rétt­trúnað geta stór­kost­legir hlutir gerst.“

Mistök hafi einkennt stjórn landsins

Þegar skyn­semi væri látin víkja fyrir kreddum fylgdu mis­tök, sagði for­maður Mið­flokks­ins. En ýmis­leg „fyr­ir­sjá­an­leg mis­tök“ hefðu átt sér stað við stjórn lands­ins. Í því sam­hengi nefndi hann meðal ann­ars stað­setn­ingu nýs Land­spít­ala og ný lög um útlend­inga sem Sig­mundur segir hafa gert inn­flytj­enda­mál á Íslandi stjórn­laus.

„Það voru fyr­ir­sjá­an­leg mis­tök að ætla að setja reglur um hvernig fólk eigi að tjá sig og hugsa og senda alla lands­menn á inn­ræt­ing­ar­nám­skeið. Það eru mis­tök að halda slíkum til­raunum áfram þrátt fyrir reynslu ald­anna og grund­vall­ar­mik­il­vægi tján­ing­ar­frelsis. Það voru fyr­ir­sjá­an­leg mis­tök að álp­ast inn í lofts­lags­stefnu Evr­ópu­sam­bands­ins og binda svo enn ákaf­ari mark­mið í lofts­lags­málum í lands­lög.“

Verði ekki breyt­ingar á stjórn lands­ins, segir Sig­mundur, munu stjórn­völd halda áfram að gera fyr­ir­sjá­an­leg mis­tök.

„Þetta gerð­ist og mun ger­ast áfram nema það verði breyt­ingar á stjórn lands­ins. Og það ger­ist ekki öðru­vísi en að kjós­endur sýni, í tæka tíð, að þeir séu búnir að fá nóg af umbúða­mennsku og rugli og styðji heil­brigða skyn­semi til valda.“

Segir hælisleitendur oft á vegum glæpagengja

Sig­mundur Davíð ljáði máls á skoð­unum sínum á hæl­is­leit­enda­málum, en hann segir öfl­ugt vel­ferðra­kerfi vera ósam­rým­an­legt opnum eða lekum landa­mærum. 

Þá sagði hann að að mati Evr­ópu­lög­regl­unnar kæmu yfir 95 pró­sent þeirra hæl­is­leit­enda sem til Evrópu á vegum glæpa­gengja. „Nú hafa hættu­leg gengi glæpa­manna gert vel­vild vest­rænna ríkja að sölu­vöru. Þau hafa selt vænt­ingar um betri lífs­kjör sem mót­tök­u­lönd­unum er ætlað að upp­fylla. Ísland var gert að sölu­vöru þeirra sem skipu­leggja slíkar ferðir og reglu­verkið hér og fram­kvæmd þess hafa ýtt undir það.“

Í stað þess að taka á móti fólki sem hefur engin áform um að aðlag­ast íslensku sam­fé­lagi leggur Sig­mundur Davíð til að styðja frekar við fólk á nær­svæðum átaka og ann­arra ham­fara.

Þá und­ir­strik­aði hann mik­il­vægi þess að nýta Dyfl­in­ar­reglu­gerð­ina þegar fólk kæmi til Íslands í gegnum önnur örugg ríki. Þannig mætti „strax ná tökum á vand­anum og draga þannig stór­lega úr mögu­leikum skipu­lagðrar glæp­a­starf­semi á að hafa landið, sam­fé­lagið og fólk í erf­iðri stöðu að féþúfu.“

Varar við Evrópusambandinu

Sig­mundur Davíð var afdrátt­ar­laus í gagn­rýni sinni á Evr­ópu­sam­bandið og það sem hann sagði áform rík­is­stjórn­ar­innar að koma Íslandi inn í ESB „með öllum til­tækum ráðum,“ en hann segir slíka áherslu ein­göngu geta stafað af við­skiln­aði við raun­veru­leik­ann og heil­brigðri skyn­semi. 

„Evr­ópu­sam­bandið er í krísu. Hag­vöxtur er lít­ill, fyr­ir­tæki og heilu atvinnu­grein­arnar hrekj­ast í burtu, reglu­verkið er orðið svo yfir­gengi­legt að jafn­vel for­sprakkar sam­runa­þró­un­ar­innar geta ekki annað en geng­ist við því. Það er við þessar aðstæður sem rík­is­stjórnin ein­beitir sér að því umfram allt annað að kom­ast um borð í hið sökkvandi skip.“

Þá tal­aði for­maður Mið­flokks­ins einnig gegn því að Ísland geng­ist við lofts­lags­stefnu Evr­ópu­sam­bands­ins og tæki þátt í gjald­lagn­ingu vegna flug­sam­gangna og skipa­flutn­inga. „Heil­brigð skyn­semi kallar á að strax verði ráð­ist í að end­ur­skoða íþyngj­andi kvaðir og frá­leit ref­sigjöld sem lögð eru á Íslend­inga vegna lofts­lags­mála. Ísland, sem er best í heimi á þessu sviði, má ekki láta Evr­ópu­sam­bandið áfram draga sig inn í glóru­lausa stefnu sam­bands­ins sem gerir ekki annað en að hrekja iðnað úr álf­unni og skerða lífs­kjör.“

Kjósa
-9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Steinar Harðarson skrifaði
    Kreddurnar eiga lögheimili í Miðflokknum.
    0
  • ÁJ
    Ástþór Jóhannsson skrifaði
    Ég veit það ekki en það slær mig illa að heyra hvernig formaðurinn SDG jagast á orðunum "skynsemi og kreddur." Það hlýtur allt skynsamt og velvijað fólk að sjá í gegnum þennan vægast sagt varhugaverð málflutning. Og ekki má gleyma "jarðtengingunni" hjá honum. Öfugmælavisur i skásta falli. Innantómar klisjur, en hugsið ykkur - það eru einhverjir sem gapa upp þetta.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár