Dæmdur fyrir 40 milljóna fjárdrátt úr dánarbúi móður sinnar

Maður á átt­ræð­is­aldri hefur verið dæmdur í sex mán­aða fang­elsi fyrir að draga sér rúm­lega 40 millj­ónir króna af reikn­ingum lát­innar móður sinnar. Hann hafði verið útnefndur umboðs­maður erf­ingja í einka­skiptum á dán­ar­búi hennar.

Dæmdur fyrir 40 milljóna fjárdrátt úr dánarbúi móður sinnar

Karl­maður á átt­ræð­is­aldri var í dag dæmdur fyrir að taka út rúmar 40 millj­ónir króna af reikn­ingum lát­innar móður sinnar. Maðurinn hafði verið full­trúi erf­ingja við skipti á dán­ar­búi hennar. Hann var auk þess dæmdur fyrir pen­inga­þvætti, þar sem hann milli­færði hluta pen­ing­anna á milli eigin reikn­inga.

Dómur í mál­inu féll í dag og var mað­ur­inn dæmdur í sex mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir brotin. Hann ját­aði sök fyrir dómi og taldi dóm­ur­inn sannað að hann hefði bæði gerst sekur um fjár­drátt og pen­inga­þvætti.

Fjár­drátt­ur­inn fór fram með sjö milli­færslum og úttektum á árunum 2019 til 2021, sam­kvæmt dómnum, og tók mað­ur­inn í heild 40.303.203 krónur af banka­reikn­ingi dán­ar­bús­ins. Hann tók út eða milli­færði fjár­hæð­irnar yfir á eigin reikn­inga. 

Síðar nýtti hann hluta fjár­ins með því að leggja fimm  millj­ónir króna inn á reikn­ing dóttur sinnar og milli­færa rúmar 14 millj­ónir milli eigin reikn­inga, sem var talið fela í sér pen­inga­þvætti.

Við ákvörðun refs­ingar var tekið til­lit til þess að mað­ur­inn væri rúm­lega sjö­tugur, hefði ekki áður orðið upp­vís að refsi­verðri hátt­semi, hefði játað brotin ský­laust og að nokkur tími hefði verið lið­inn frá brot­unum. Hins vegar vó þungt að hann hefði dregið að sér háar fjár­hæðir úr dán­ar­búi móður sinnar, á kostnað ann­arra erf­ingja.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Aumt er það. Græðgin er ein af dauðasyndunum sjö😪
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár