Halda vöxtum í 7,5 prósentum

Seðla­bank­inn hækkar hvorki né lækkar vexti. Bankinn til­kynnti ákvörðun sína í morgun. Verð­bólga mælist enn yfir mark­miði.

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bank­ans óbreyttum. Þetta þýðir að meg­in­vextir bank­ans, vextir á sjö daga bundnum inn­lánum, svo­kall­aðir stýri­vextir, verða því áfram 7,50 pró­sent.

Í til­kynn­ingu frá bank­anum segir að allir nefnd­ar­menn hafi stutt þessa ákvörðun.

„Margt hefur þok­ast í rétta átt en þær aðstæður hafa ekki enn skap­ast að hægt sé að slaka á núver­andi raun­vaxta­að­haldi pen­inga­stefn­unnar,“ segir í til­kynn­ingu nefnd­ar­innar. 

For­sendur fyrir vaxta­lækkun séu þær að verð­bólga fær­ist nær mark­miði bank­ans, sem er 2,5 pró­sent. 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár