Tyrkir hefja rannsókn á aðgerðum Ísraels gegn hjálparflotanum

Ísra­elski her­inn hefur farið um borð í þrettán báta sem til­heyra flot­anum sem siglir með hjálp­ar­gögn til Gaza. Allir um borð hafa verið hand­teknir. Utan­rík­is­ráðu­neyti Tyrk­lands lýsti aðgerð­unum sem „hryðju­verka­árás“. Íslend­ingur er um borð í einu þeirra skipa sem enn hafa ekki verið stöðvuð.

Tyrkir hefja rannsókn á aðgerðum Ísraels gegn hjálparflotanum
Hand­tekin af hernum Greta Thunberg og fleiri aðgerð­ar­sinnar eftir að hafa verið hand­tekin á alþjóð­legu haf­svæði utan við strönd Gaza. Ísra­elska utan­rík­is­ráðu­neytið birti mynd­ina á X, áður Twitter. Mynd: Utanríkisráðuneyti Ísraels

Tyrknesk yfir­völd hafa hafið rann­sókn á hand­töku tyrk­neskra borg­ara um borð í þeim skipum sem til­heyra Global Sumud flot­anum á leið til Gasa, eftir að hann var stöðv­aður af ísra­elska sjó­hernum á alþjóð­legu haf­svæði.

Í yfir­lýs­ingu frá rík­is­sak­sókn­ara í Istanbúl kom fram að rann­sóknin taki til 24 Tyrkja sem hand­teknir voru um borð í Global Sumud flot­anum. Vísað er til haf­rétt­ar­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna og sagð­ist emb­ættið kanna mögu­leg brot á borð við ólög­mæta frels­is­svipt­ingu, flug­ráni eða upp­töku far­ar­tækis, rán, eigna­tjón og pynt­ingar.

Tón­list­ar­konan og aðgerðasinn­inn Margrét Kristín Blöndal, Magga Stína, er um borð í skip­inu Conscience sem siglir með flot­anum. Hún er ekki ein þeirra sem hefur verið stöðvuð og hand­tekin. Fjörutíu bátar til­heyra flot­anum og hefur ísra­elski her­inn farið um borð í þrettán þeirra. Meðal hand­tek­inna er sænski aðgerð­ar­sinn­inn Greta Thunberg. 

Tyrk­neskir fjöl­miðlar greindu frá því að alls hefðu 30 Tyrkir verið hand­teknir og fluttir til Evrópu til brott­vís­unar. …

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    Hryðjuverkaríkið Ísrael fer sínu fram í skjóli Bandaríkjaforseta.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár