Heimilin fengu á sig hærri vexti og bankarnir hagnast meira

Arðsemi bank­anna af tekjum hefur ekki verið meiri í ára­tug. Nýjar tölur sýna hvernig bank­arnir taka meira til sín í gegnum hærri vexti og verð­trygg­ingu.

Heimilin fengu á sig hærri vexti og bankarnir hagnast meira
Blikur á lofti Fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd Seðla­banka Íslands gaf út skýrslu sína í dag. Varað er við óvissu í heims­mál­unum. Mynd: Seðlabanki Íslands

Stóru íslensku við­skipta­bank­arnir skila af sér meiri hagn­aði en áður. Ein lyk­ilá­stæðan er meiri vaxta­tekjur þeirra af við­skiptum við almennning og fyr­ir­tæki lands­ins og hærri vaxta­munur, en hann sýnir mis­mun­inn á útláns­vöxtum og inn­láns­vöxtum bank­anna. Þessar tekjur og þessi munur eru nú hærri en þau hafa verið síð­asta ára­tug­inn.

Hagnaður „kerf­is­lega mik­il­vægu bank­anna“, Arion banka, Íslands­banka og Lands­banka, jókst um 10,3 millj­arða króna fyrstu sex mán­uði árs­ins miðað við árið áður, sam­hliða því að hreinar vaxta­tekjur juk­ust um 8,7 millj­arða. Hagn­að­ur­inn var sam­an­lagt 47 millj­arðar króna. Í nýrri skýrslu fjár­mála­stöð­ug­leika­nefndar Seðla­banka Íslands kemur fram að þessi aukni hagn­aður sé að hluta rekj­an­legur til auk­inna vaxta­tekna bank­anna. 

Arðsemi eigin fjár kerf­is­lega mik­il­vægu bank­anna „af und­ir­liggj­andi rekstri, án ein­skipt­isliða, var 14,2% fyrri hluta árs­ins 2025 sam­an­borið við 12,4% á sama tíma­bili á síð­asta ári,“ segir í skýrsl­unni um fjár­mála­stöð­ug­leika.

Lyk­ilá­stæða meiri hagn­aðar bank­anna er að þeir inn­heimta hærri vexti …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár