Fjórtán með fölsuð skilríki – Óvenjulegt mál og mansal til skoðunar

Fjórtán manns frá Asíu voru stöðvuð á Kefla­vík­ur­flug­velli með fölsuð skil­ríki í lok ágúst. Tvö lög­reglu­um­dæmi, rík­is­lög­reglu­stjóri og dóms­mála­ráðu­neyti koma að mál­inu, auk þess sem haft hefur verið sam­band við Europol.

Fjórtán með fölsuð skilríki – Óvenjulegt mál og mansal til skoðunar
Tengi­völlur „Við erum kannski fyrst að sjá núna að það sé verið að herja svona grimmt á Ísland,“ segir aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn á Kefla­vík­ur­flug­velli. Myndin er úr safni og teng­ist efni frétt­ar­innar ekki með beinum hætti. Mynd: Golli

Fjórtán manns frá Asíu hafa frá því í lok ágúst­mán­aðar verið stöðvuð á Kefla­vík­ur­flug­velli með fölsuð skil­ríki. Fólkið er ekki í gæslu­varð­haldi en má hvorki koma inn í landið né halda ferð sinni áfram. Þau eru því í úrræði á afmörk­uðu svæði sem lög­reglan getur fylgst með á grund­velli laga um útlend­inga og laga um landa­mæri.

Þetta stað­festir Ómar Annisius, aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn á Kefla­vík­ur­flug­velli, í sam­tali við Heim­ild­ina. „Við erum enn að vinna í því að stað­festa auð­kenni þess­ara aðila. Það er verk í vinnslu. Við erum að von­ast eftir því að fá ein­hverja sam­vinnu frá þessum ein­stak­lingum til þess að aðstoða okkur við að bera kennsl.“

Blm: Er grunur um að þetta gæti verið man­sal?

„Við úti­lokum það alls ekki,“ segir Ómar.

Gefa upp rangt þjóðerni

Allir ein­stak­ling­arnir höfðu komið frá Asíu til Evrópu, inn á Schengen-svæðið þaðan sem þau ferð­uð­ust til Íslands og ætl­uðu sér að halda áfram til Kanada. „Þetta eru allt mis­mun­andi staðir innan Evrópu sem þetta fólk er að ferð­ast frá.“ 

Spurður nánar út í eðli skil­ríkj­anna segir Ómar þau vera frá ýmsum löndum – Suður-Kóreu, Japan og Taívan, til dæmis. 

Blm: Haldið þið að þau séu að villa á sér heim­ildir með til­liti til þjóð­ernis?

„Já,“ segir Ómar, sem vill ekki tjá sig um það hvort fólkið hafi verið í sam­floti. Þá segir hann enn ótíma­bært að segja í hvaða erinda­gjörðum ein­stak­ling­arnir voru.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar er um Kínverja að ræða. 

Gríðarlegt álag á lögregluna

Blm: Er ein­hver grunur um að það hafi verið stærri hópur – komust ein­hverjir í gegn?

„Ég get ekki stað­fest að svo stöddu að ein­hver hafi kom­ist í gegn. En við erum í sam­skiptum við Evr­ópu­lög­regl­una og önnur ríki til að reyna að ná betur utan um ástandið og sjá hvort þetta sé mögu­lega hluti af ein­hverju stærra verk­efni, ef svo má segja.“ 

Ómar segir aðspurður að málið sé óvenju­legt, málið eigi sér ekki for­dæmi. „Það er óvenju­legt að sjá svona marga koma á svona stuttum tíma, svo sann­ar­lega. Það sem er í raun sami áfanga­stað­ur­inn – Kanada í þessu til­felli. Þetta setur gríð­ar­legt álag á ákveðna inn­viði og á lög­regl­una. Þarna mæðir rosa mikið á að við þurfum að hafa úrræði til þess að geta tek­ist á við verk­efni af þess­ari stærð­argráðu.“

„Við erum í sam­skiptum við Evr­ópu­lög­regl­una og önnur ríki til að reyna að ná betur utan um ástandið og sjá hvort þetta sé mögu­lega hluti af ein­hverju stærra verk­efni, ef svo má segja“

Hann bætir við að málið krist­alli mik­il­vægi þess að koma á ein­hvers konar úrræðum við landa­mærin þegar svona mál komi upp – en Ómar seg­ist sann­færður um að fleiri slík mál lendi á borði lög­reglu í fram­tíð­inni. „Það sem ég myndi mest vilja sjá – og lög­reglan – er að það væri ein­hvers konar vist­un­ar­úr­ræði á landa­mær­unum þar sem við gætum verið að hýsa ein­stak­linga sem fá ekki land­göngu og eru til skoð­unar.“

Fyrst að sjá núna að herjað sé á Ísland

Ómar bætir því við að lög­reglan á Suð­ur­nesjum, lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og rík­is­lög­reglu­stjóri séu að vinna náið saman við úrlausn þessa máls. „Við erum líka í mjög góðum sam­skiptum við dóms­mála­ráðu­neytið.“ 

Spurður hvort hægt sé að setja málið í sam­hengi við alþjóð­lega þróun seg­ist Ómar telja að svona mál hafi verið við­var­andi í tölu­verðan tíma.

„Við erum kannski fyrst að sjá núna að það sé verið að herja svona grimmt á Ísland. Ísland er nátt­úru­lega þessi tengi­völlur við bæði Evrópu og Banda­ríkin. Þannig að þarna eru menn að reyna að koma sér í gegn og nýta sér flug­stöð­ina til að reyna að kom­ast á áfanga­stað. En við erum stað­ráðin í því að standa vakt­ina og erum að beita þeim mót­væg­is­að­gerðum sem við getum – við höldum bara áfram með okkar bar­áttu.“ 

Kjósa
40
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Allir reyna einhvernvegin að ná sér í penínga alveg sama hvað það kostar!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár