Myndir: Skiptu út íslenska fánanum við utanríkisráðuneytið

Mót­mæl­endur skiptu íslenska fán­anum út fyrir þann palest­ínska við utan­rík­is­ráðu­neytið síð­degis í dag. Tveir palest­ínskir fánar voru gerðir upp­tækir af lög­reglu.

Myndir: Skiptu út íslenska fánanum við utanríkisráðuneytið
Fjar­lægður Lögregla fjar­lægði palest­ínska fán­ann. Mynd: Víkingur

Mót­mæl­endur tóku niður íslenskan fána fyrir utan utan­rík­is­ráðu­neytið í dag og drógu þann palest­ínska að húni í hans stað.

Atvikið átti sér stað við mót­mæli fyrir framan ráðu­neytið síð­degis þar sem hópur fólks krafð­ist aðgerða íslenska rík­is­ins í mál­efnum Palest­ínu, en hung­ursneyð hefur verið lýst yfir á hinu stríðs­hrjáða Gaza-svæði.

Mót­mæl­endur brutu íslenska fán­ann saman eftir að hann hafði verið dreg­inn niður – enda gilda strangar reglur um notkun hans.

Lög­reglan skarst í leik­inn vegna athæf­is­ins og tók bæði palest­ínska fán­ann sem blakti á fána­stöng við ráðu­neytið, auk ann­ars sem hafði verið hengdur á and­dyri þess og gerðu upp­tæka.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Árni Guðnýar skrifaði
    Afhverju má ekki kjæra & dæma fólk sem brítur lögin að einskjæri góðmensku sinni fyrir Hamars & Hispolla ?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár