Kvótafjölskyldurnar á Hátekjulistanum

Nær helm­ingur úthlut­aðra afla­heim­ilda er í eigu örfárra fjöl­skyldna en þeim til­heyra skatta­kóngur og skatta­drottn­ing síð­asta árs auk ann­arra sem komust á Hátekju­lista Heim­ild­ar­innar.

Kvótafjölskyldurnar á Hátekjulistanum
Fjöl­skyld­urnar í Ísfé­lag­inu, Samherja og Brimi Sex fjöl­skyldur stýra hópum þriggja sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja sem halda á nær helm­ingi allra afla­heim­ilda. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Sex fjöl­skyldur stýra þremur hópum tengdra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja sem halda sam­tals á nær helm­ingi allra útgef­inna afla­heim­ilda.

Hátekju­listi Heim­ild­ar­innar, sem á eru 3.542 ein­stak­lingar, tekju­hæsta 1% Íslands, sýnir hversu háum tekjum þessi ítök skila fjöl­skyldu­með­limum.

Eign­ar­hald á þeim afla­heim­ildum sem ríkið úthlutar hefur verið greint reglu­lega í Sjáv­ar­út­vegs­skýrslum Heim­ild­ar­innar en sú síð­asta var birt í júní.

Tuttugu stærstu fyr­ir­tækin í sjáv­ar­út­vegi eiga meira en 78 pró­sent allra afla­heim­ilda en hverju og einu er óheim­ilt að eiga meira en 12 pró­sent. Þrátt fyrir þetta á til dæmis útgerð­ar­fé­lagið Brim yfir það pró­sent útgef­inna afla­heim­ilda þegar dóttur- og hlut­deild­ar­fé­lög þess eru talin með, sam­kvæmt nýj­ustu gögnum Fiski­stofu.

Brim-fjöl­skyldan er einn af áður­nefndum þremur hópum sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja en hin eru kennd við Ísfé­lagið í Vest­manna­eyjum ann­ars vegar og Samherja og Síld­ar­vinnsl­una hins vegar.

…
Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár