Vance veltir öryggi Úkraínu yfir á Evrópuríki

„Þetta er þeirra heims­álfa,“ segir vara­for­seti Banda­ríkj­anna. Friður virð­ist fjar­lægj­ast.

Vance veltir öryggi Úkraínu yfir á Evrópuríki
JD Vance Vara­for­set­inn hefur verið gagn­rýn­inn á Evr­ópu­ríki fyrir að sækja varnir til Banda­ríkj­anna. Mynd: Shutterstock

Evrópa mun þurfa að bera „meg­in­þunga byrð­ar­innar“ fyrir öryggi Úkraínu, segir JD Vance, vara­for­seti Banda­ríkj­anna, á sama tíma og banda­rísk stjórn­völd þrýsta á að stríð­inu sem hófst með inn­rás Rúss­lands árið 2022 ljúki.

Vance var spurður í þætt­inum „Ingraham Angle“ á Fox News í gær­kvöldi um örygg­is­á­byrgðir fyrir Úkraínu og umfang þátt­töku Evrópu, mál­efni sem rædd voru á leið­toga­fundum síð­ustu vik­una með það að mark­miði að binda enda á stríðið.

„Jæja, ég tel að við ættum ekki að bera byrð­ina hér,“ sagði Vance.

„Þetta er þeirra heims­álfa. Þetta er þeirra öryggi, og for­set­inn hefur verið mjög skýr, þau verða að stíga fram hér.“

Vance sagði einnig að þótt stjórn­völd í Washington myndu hjálpa til við að binda enda á átökin, yrðu Evr­ópu­þjóðir að leiða örygg­is­fyr­ir­komu­lagið. Hann skil­greindi ekki útfærsl­una nánar.

„Banda­ríkin eru opin fyrir því að eiga sam­talið, en við munum ekki skuld­binda okkur fyrr en við áttum okkur á hvað verður nauð­syn­legt til að stöðva stríðið í fyrsta lagi,“ sagði hann.

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, hitti Vladimír Pútín, for­seta Rúss­lands, í Alaska í síð­ustu viku áður en hann bauð Volody­myr Zelensky, for­seta Úkraínu, og evr­ópskum leið­togum til Washington á mánu­dag­inn. Eftir fund­inn með Pútín komst Trump að þeirri nið­ur­stöðu að Úkraína ætti að gefa eftir land sem Rússar hefðu þó ekki enn her­tekið. Þá hefur hann úti­lokað Nató-aðild Úkraínu, sem hefði veitt skýrar örygg­is­trygg­ingar frá vest­rænum ríkjum.

Þó svo að Trump hafi full­yrt að Pútín hefði sam­þykkt að hitta Zelensky og sam­þykkja vest­rænar örygg­is­á­byrgðir fyrir Úkraínu, hefur þessum lof­orðum verið tekið með mik­illi varúð í Kyiv og vest­rænum höf­uð­borgum. Mörg smá­at­riði eru enn óljós.

Fram kom í dag að Zelensky hefði sagt að hann gæti aðeins hitt Pútín eftir að banda­menn hefðu komið sér saman um örygg­is­á­byrgðir sem myndu koma í veg fyrir frek­ari árásir Rússa. Um leið hafa Rússar hafnað því að her­menn Nató­ríkja verði stað­settir í Úkraínu og sömu­leiðis úti­loka Banda­ríkin að stað­setja þar her­afla. Eftir stendur því hverjar trygg­ingar Úkraínu gegn nýrri inn­rás Rússa yrðu eftir frið­ar­sam­komu­lag.

Ummæli hans komu á sama tíma og Rússland sendi hund­ruð dróna og flug­skeyti gegn Úkraínu um nótt­ina í stærstu árásinni síðan um miðjan júlí, þar sem einn lést og margir særð­ust.

Á mið­viku­dag­inn drógu stjórn­völd í Moskvu úr líkum á leið­toga­fundi milli Pútíns og Zelenskys í náinni fram­tíð og sagði að þeir vildu vera með í umræðum um fram­tíðar­ör­ygg­is­á­byrgðir fyrir Úkraínu. 

Þá segir Sergei Lavrov, utan­rík­is­ráð­herra Rúss­lands, að Úkraína sé „ekki áhuga­söm“ um lang­tíma­frið­ar­samn­ing og sak­aði landið um að sækj­ast eftir örygg­is­á­byrgðum sem væru ósam­rým­an­legar kröfum Rúss­lands.

„Úkra­ínska stjórnin og full­trúar hennar tjá sig um núver­andi ástand á mjög sér­stakan hátt, sem sýnir beint að þau hafa engan áhuga á sjálf­bærri, sann­gjarnri og langvar­andi lausn,“ segir hann.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Bandaríkin eru að segja sig frá forystuhlutverki vestrænna þjóða. Megni Evrópa ekki að taka við keflinu, er illt í efni.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár