Barn lést í Reynisfjöru

Sjötta banaslysið í Reyn­is­fjöru á síð­ustu níu árum.

Barn lést í Reynisfjöru
Reyn­is­fjara Deilt hefur verið um hvernig auka megi öryggi ferða­manna í Reyn­is­fjöru eftir ítrekuð banaslys. Mynd: Víkingur

Ung stúlka er látin eftir að hafa fallið í sjó­inn við Reyn­is­fjöru, ásamt föður sínum og systur um miðjan dag­inn í dag. 

Ekki tókst að ná stúlkunni á land fyrr en þyrla Land­helg­is­gæsl­unnar fór á svæðið. Stúlkan var flutt á Land­spít­al­ann en var þar úrskurðuð látin.

Um var að ræða erlenda fjöl­skyldu á ferða­lagi um Ísland.

Þetta er sjötta banaslysið í Reyn­is­fjöru á innan við ára­tug, en sjö­unda dauðs­fallið varð í Kirkju­fjöru, skammt frá.

Heim­ildin fjall­aði í síð­asta tölu­blaði sínu um áskor­anir vegna fjölda­ferða­þjón­ustu á Suð­ur­landi. Um fjör­tíu ferða­menn hafa lát­ist af slys­förum í þeim lands­hluta frá árinu 2000. Þar var rætt við bónda nálægt Reyn­is­fjöru sem sagði þús­undir manns hafa lent í öldu, án þess þó að hafa tekið út. „Maður hefur fylgst með fólk­inu. Það er bara svo mikil gleði í því að vera komið í fjör­una. Það bara rýkur niður í fjöru,“ sagði hann.

Eftir því sem banaslysum hefur fjölgað hefur vaknað umræða um hvernig eigi að fjár­magna við­búnað á svæð­inu. Land­eig­endur við Reyn­is­fjöru fá greitt fyrir notkun bíla­stæða á svæð­inu, sem kosta á bil­inu 750 til 1.000 krónur fyrir hverja fólks­bif­reið sem þar er lagt. 

Varað við í vikunni

Í fyrra­dag birti íslensk kona, sem var á ferð í Reyn­is­fjöru, myndir á Facebook af börnum að leik í fjör­unni. „Ótrúleg hegðun i Reyn­is­fjöru,“ sagði hún. „Viðvörun var gul, miðl­ungs­hætta, en þarna gengu tvær mæður með þrjú ber­fætt börn sem hlupu hvað eftir annað út i öld­urnar. Þær horfðu ekki einu sinni á þau. Kannski er ég komin a ein­hvern hneyksl­un­ar­aldur en mér ofbauð.“

Börn í Reyn­is­fjöruÍslensk kona birti þessar myndir eftir að hafa heim­sótt Reyn­is­fjöru á fimmtu­dag og var­aði við hættu sem steðj­aði að börnum að leik við flæð­ar­málið.

Í rann­sókn sem gerð var árið 2019 kom fram að 15% ferða­manna, sem svör­uðu spurn­ing­ar­könnun í Reyn­is­fjöru, voru lítið eða ekki með­vit­aðir um hætt­una á svæð­inu.

Árið 2023 var sér­stakur sam­ráðs­hópur mynd­aður til að auka öryggi við Reyn­is­fjöru.

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Stella Kristjánsdóttir skrifaði
    Það þarf að vara fólk betur við hættunni sem er þarna og reyna að auka öryggi ferðalanga með betri skiltum eða köðlum. Það kostar ekki mikið og ætti að vera metnaðarmál að afmarka svæði t.d. við klettana þar sem flest dauðsföll hafa orðið.
    0
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    "... voru lítið eða ekki meðvitaðir um hættuna á svæðinu."
    Sem þýðir að þeir hafa ekki kíkt á upplýsingarskiltin sem vara eindregið við hættunum.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferðamannalandið Ísland

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár