Náttúran gefur og náttúran tekur: Hættuástand á ferðamannastöðum

Hættu­at­vik og slys verða flest á Suð­ur­landi þar sem ferða­manna­straumur er mestur. Sex banaslys hafa orðið í Reyn­is­fjöru og fjögur í Silfru á Þing­völlum. Ragnar Sigurður Ind­riða­son, bóndi við Reyn­is­fjöru, segir ferða­mönnum þykja spenn­andi að Reyn­is­fjara sé hættu­leg. Heim­ildin tók saman slys og hættur sem fylgja íslenskri nátt­úru og veð­ur­fari.

<span>Náttúran gefur og náttúran tekur:</span> Hættuástand á ferðamannastöðum
Banaslys við Brúará Auknar vin­sældir hafa orðið við Brúará en áin er ísköld og getur reynst vara­söm. Mynd: Golli

Íslensk nátt­úra er í senn stór­kost­lega fal­leg og svaka­lega hættu­leg. Hér hrifsa öldur allt sem á vegi þeirra verður, laust móbergið hrynur undan fótum fólks og veðrið breytir um skoðun á fimm mín­útna fresti.

Ferða­menn koma flestir til lands­ins til að skoða íslenska nátt­úru en margt ber að var­ast. Mik­il­vægt er því að hafa góðar örygg­is­ráð­staf­anir á ferða­manna­stöðum lands­ins. Heim­ildin tók saman hætt­urnar og slysin sem hafa orðið í íslenskri nátt­úru und­an­farin ár.  

Samkvæmt könnun sem Ferða­mála­stofa gerði árið 2023 sögðu 97 pró­sent ferða­manna að nátt­úra Íslands hefði haft áhrif á ákvörðun þeirra að heim­sækja landið. Þá sögð­ust 85 pró­sent hafa áhuga á norð­ur­slóðum og átta­tíu pró­sent á nátt­úru­tengdri afþr­ey­ingu. Lands­menn sjálfir eru einnig áhuga­samir um landið en 85 pró­sent Íslend­inga ferð­ast um frónið fagra og segja 63 pró­sent hvatann til þess vera að njóta nátt­úr­unnar, ferð­ast um og upp­lifa nýja staði. 

…

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Birgit Braun skrifaði
    Mh. Hvernig stendur á því að landeigandinn segist ekki hafa tekjur af Brúará? Fyrir 3 árum síðan rudduðu landeigendur leið að fossinn vestanmegin frá og settu upp bílastæði. Aðgangurinn er nú orðið miklu auðveldara og fjöldi ferðamanna hefur margfaldast. Rukkað er gjald á bílastæðinu ( engin önnur þjónusta á staðnum) og annað bílastæði er í vinnslu. Ekki er ég sammála að gönguleiðin austanmegin upp með fossinn sé ekki hættuleg: mikið vatnsmagn fer í gegnum djúpa sprungu í miðju árinnar, þar sem myndast hólrúm. Brúará er ekki bara" köld " en stórhættuleg á og er áhættan vanmetin af ferðafólkinu.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferðamannalandið Ísland

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár