Meinað að styðja Palestínu í Pride-göngu Berlínar

Söng­konan Ásdís María fékk ekki að vera með skilti til stuðn­ings Palest­ínu á vagni Uni­ver­sal-útgáfu­fyr­ir­tæk­is­ins í Pride-göngu Berlínar um helg­ina. Hún yfir­gaf vagn­inn frekar en að skila skilt­inu.

Meinað að styðja Palestínu í Pride-göngu Berlínar
Ásdís María Söng­konan fékk að heyra að skiltið væri ekki leyfi­legt sam­kvæmt reglum Pride-göng­unnar.

Ásdís María Við­ars­dóttir, íslensk söng­kona sem nýtur mik­illa vin­sælda í Þýska­landi og er á mála hjá útgáfu­fyr­ir­tæk­inu Uni­ver­sal, fékk ekki að bera skilti til stuðn­ings Palest­ínu á vagni fyr­ir­tæk­is­ins í Pride-göng­unni í Berlín sem fram fór á laug­ar­dag.

Ásdís María er vin­sæl popp­stjarna í Þýska­landi og var boðið að vera á vagni Uni­ver­sal útgáf­unnar í Berlin Pride göng­unni. Hátíð­ar­höldin eru kennd við Christopher Street Day (CSD) til minn­ingar um Stonewall-mót­mælin í New York árið 1969 þegar hinsegin fólk reis upp gegn lög­regl­unni.

„Ég gerði skilti, eins og maður á að gera fyrir mót­mæla­göngu,“ segir Ásdís María. „Hinsegin fólk stendur alltaf með öðrum kúg­uðum hópum. Það er í okkar sam­fé­lagi að gera það og ég hélt að það væri svo ótrú­lega sjálf­sagt. Þannig að ég gerði skilti sem stóð á „queers for Palestine“ með palest­ínska fán­anum. Svo gerði ég annað skilti sem á stóð „protect the dolls, protect black trans youth, queer liberation, love is love, free Palestine, per­iod“.“

„Mín skoðun er samt að núna sé tím­inn til að standa upp fyrir því sem maður trúir þó það fari gegn settum reglum“

Hún segir að eng­inn annar á Uni­ver­sal vagn­inum hafi verið með skilti en að við­staddir hafi sýnt henni mik­inn stuðn­ing þegar hún mætti. „Ég sá einn starfs­mann koma sem sagði að það væri hluti af reglum CSD að það mætti ekki vera í göng­unni með svona skilti,“ segir hún.

Skiltið í göng­unniÁsdís María seg­ist ekki hafa séð neina aðra með skilti í opin­beru Pride-göng­unni.

„Það stóð ekk­ert í regl­unum frá Uni­ver­sal þess efnis að ég mætti ekki vera með skilti eða eitt­hvað póli­tískt. Mín skoðun er samt að núna sé tím­inn til að standa upp fyrir því sem maður trúir þó það fari gegn settum reglum, sér­stak­lega þegar þetta er stórt fyr­ir­tæki sem notar Pride-göng­una til að kynna sína lista­menn. Þetta snýst um líf og dauða og ég er ekki sam­mála því að þetta sé tím­inn til að hugsa um regl­urnar. Ég var svo leið yfir því að þeir gerðu þetta.“ bætir hún við.

Hún ákvað því að yfir­gefa vagn­inn og taka skiltið með sér. „Ég fór og ég gekk bara göng­una,“ segir Ásdís. „Það var eng­inn annar með Palest­ínu-skilti þarna sem mér fannst stórfurðu­legt því við erum að horfa á heila þjóð deyja á hverjum degi. Þetta er ekki bara ein­hver póli­tískur punktur heldur þarf að vekja athygli á þessu við hvert tæki­færi. Og það er ekk­ert tæki­færi betra en rétt­inda­ganga hinsegin fólks.“

Styðja Ísrael dyggilega

Þýsk stjórn­völd hafa ekki við­ur­kennd til­vist Palest­ínu­ríkis og hafa lengi stutt við Ísra­els­ríki. „Öryggi Ísraels skiptir öllu máli fyrir þýsk stjórn­völd,“ sagði tals­maður rík­is­stjórn­ar­innar við Reuters á föstu­dag en frönsk stjórn­völd til­kynntu nýlega um að þau hyggð­ust við­ur­kenna Palest­ínu­ríki.

Stefna Þýska­lands snýst að miklu leyti um ábyrgð rík­is­ins til að bæta fyrir hel­för nas­ista gegn evr­ópskum gyð­ingum í Seinni heims­styrj­öld­inni þegar sex millj­ónir gyð­inga voru drepnir af þýskum stjórn­völdum.

Önnur Pride ganga í hverf­inu Kreuzberg var stöðvuð af lög­regl­unni á laug­ar­dag en þar mót­mæltu um 10.000 manns afstöðu þýskra stjórn­valda til Ísraels og Palest­ínu. Lög­reglan sagði mót­mæl­endur hafa ráð­ist á lög­reglu­menn en mynd­bönd sína harka­legar aðfarir lög­reglu­manna gegn mót­mæl­endum. Tugir þeirra voru hand­teknir að því fram kemur í The Berliner en lög­reglan hefur ekki viljað tjá sig um mynd­böndin.

Ekki bara skemmtanagildi í hinseginleikanum

Ásdís María segir að hún hefði betur farið í Kreuzberg göng­una þar sem margir hafi tekið skilt­inu hennar illa í opin­beru göng­unni. „Þetta er rétt­inda­ganga og mér er fyr­ir­munað að skilja af hverju fólk tók þessu svona illa,“ segir hún. „En aðrir hvöttu mig áfram. Það var eins og ég væri eina mann­eskjan með skilti í göng­unni. Gangan í Kreuzberg er alvöru Pride-ganga fyrir mér því þar kemur fólk saman og berst fyrir rétt­indum allra.“

Ásdís MaríaSöng­konan segir aðra hinsegin göngu í borg­inni hafa snú­ist um bar­áttu fyrir rétt­indum allra.

Ásdís María var einn af laga­höf­undum Scared of Heights, sem söng­konan Hera flutti í Eurovision-keppn­inni í Malmö vorið 2024. Ásdís neit­aði hins vegar að fylgja lag­inu í keppn­ina vegna þátt­töku Ísraels og vafa­at­riða um fram­kvæmd for­keppn­innar.

„Ekkert okkar er frjálst fyrr en við öll erum frjáls“

Hún segir stefnu Þýska­lands í þessum málum vera furðu­lega. „Ég veit að það að vera sagt að fara af ein­hverri rútu er ekki hræði­legt miðað við það að annað fólk deyr fyrir þennan mál­stað,“ segir Ásdís María. „En rétt­inda­göngur geta ekki bara verið ógeðs­lega æðis­legar bara af því að það er sá hluti af hinseg­in­leika sem almenn­ingur er til­bú­inn að taka við því hann hefur skemmt­ana­gildi. Þetta er rétt­inda­ganga og það má ekki gleym­ast. Þetta er sam­fé­lag sem er í hættu og hjálpar öðrum sem eru í hættu. Ekkert okkar er frjálst fyrr en við öll erum frjáls.“

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár