Stendur með því sem hjartað segir að sé rétt

Ásdís María Við­ars­dóttir hefur slegið í gegn í þýsku­mæl­andi löndum. Meðal ann­ars átt lag í fyrsta sæti vin­sælda­lista útvarps­stöðva í Þýska­landi og verið til­nefnd þar fyrir besta popp­lag árs­ins. Hér heima vakti hún umræðu í fyrra þegar hún dró sig frá lagi sínu í Eurovision vegna hern­að­ar­ins á Gaza. Ásdís María ræðir allt þetta í við­tali – og meira til!

Stendur með því sem hjartað segir að sé rétt

„Ég hef alltaf gert tón­list. En hún fór ekki að verða að vinnu fyrr en 2019, myndi ég segja,“ segir Ásdís María, aðspurð um hvenær hún byrj­aði að búa til músík. Á skömmum tíma hefur Ásdís fjórum sinnum verið með lag á topp-tíu-vin­sælda­lista útvarps­stöðva í Þýska­landi, þar af eitt lag í fyrsta sæti. Nýverið gaf hún út lagið Touch Me sem rauk strax upp í átt­unda sæti. Þá var lag eftir hana til­nefnt sem popp­lag árs­ins í Þýska­landi nú 2024.

Raunar á þetta við­tal sér sér­kenni­legan aðdrag­anda því blaða­maður var á ferð í Berlín ásamt stjúp­dóttur sinni af fyrra sam­bandi sem spurði: „Ætlarðu ekki að taka við­tal við Ásdísi? Hún er orðin popp­stjarna hérna!“

Blaða­mann rám­aði í Ásdísi á ung­lings­árum, frjáls­legri í fasi, en hafði ekki áttað sig að sú Ásdís væri sú sama og sú sem kvaðst sam­visku sinnar vegna ekki geta fylgt sig­ur­lagi sínu eftir í …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár