Bað stjórn flokksins að íhuga stöðu sína

Fram­kvæmda­stjórn Sós­í­alista­flokks­ins sá ekki til­efni til að víkja Karli Héðni Krist­jáns­syni úr stjórn­inni að hans sögn eftir að hann greindi frá sam­bandi við unga konu.

Bað stjórn flokksins að íhuga stöðu sína
Karl Héðinn Krist­jáns­son og Gunnar Smári Egilsson Karl Héðinn, sem situr í fram­kvæmda­stjórn Sós­í­alista­flokks­ins, og Gunnar Smári Egilsson, sem missti sæti sitt í maí, standa hér bak í bak á átaka­fundi um félagið Vor­stjörn­una 30. júní. Mynd: Golli

Karl Héðinn Krist­jáns­son segir að hann hafi beðið fram­kvæmda­stjórn Sós­í­alista­flokks­ins um að íhuga stöðu sína eftir að hann greindi frá sam­bandi sínu við unga konu.

Karl Héðinn til­kynnti í dag um afsögn sína sem for­maður ROÐA, ung­liða­hreyf­ingar flokks­ins, vegna máls­ins.

Hann greindi frá því nýverið að hann hefði átt í sam­bandi við unga konu, að hans sögn 16 ára gamla, þegar hann var 22 ára á vegum ung­liða­hreyf­ingar Pírata í Svíþjóð árið 2017.

„Já, ég bað stjórn­ina að íhuga stöðu mína þar og þau sáu ekki til­efni til þess að víkja mér þaðan,“ segir Karl Héðinn í svari við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar. „Hins vegar er verið að mynda trún­að­ar­ráð sem mun geta tekið á málum sem þessum en félags­menn fara fram á það.“

„Þau sáu ekki til­efni til þess að víkja mér þaðan“

Hann bætir því við að fram­kvæmda­stjórn flokks­ins vinni nú að því að trún­að­ar­ráð flokks­ins kom­ist í gagnið. „Það er ný stofnun innan flokks­ins sem var sam­þykkt á síð­asta aðal­fundi, og var laga­breyt­ing­ar­til­laga ROÐA,“ segir Karl Héðinn.

Karl Héðinn var kos­inn í fram­kvæmda­stjórn flokks­ins á aðal­fundi í maí þar sem mörgum af þeim sem stýrt höfðu flokknum var skipt út. Þar á meðal voru Gunnar Smári Egilsson, stofn­andi flokks­ins og rit­stjóri Sam­stöðv­ar­innar. Karl Héðinn hafði verið gagn­rýn­inn á hans störf innan fram­kvæmda­stjórn­ar­innar.

Síðan þá hafa miklar deilur geisað í flokknum, meðal ann­ars um félagið Vor­stjörn­una, sem þegið hefur hluta af styrkjum til flokks­ins sem borist hafa frá rík­is­sjóði og Reykja­vík­ur­borg. Félagið er leigu­taki í Bolholti 6 þar sem Sam­stöðin er til húsa og flokk­ur­inn var með skrif­stofur en eftir aðal­fund í félag­inu 30. júní komu stjórn­ar­menn í flokknum að luktum dyrum.

„Það hafa ýmis mál komið upp í gegnum tíð­ina og fram­kvæmda­stjórn telur mik­il­vægt að það kom­ist í gagnið í ljósi átak­anna í flokknum,“ bætir Karl Héðinn við um trún­að­ar­ráðið. „Við í ung­liða­deild­inni þá vildum raun­veru­lega trún­að­ar­menn sem væri hægt að leita til þegar erfið mál koma upp í sam­skiptum og hegðun innan flokks­ins.“

Hafa heimild til að vísa fólki úr flokknum

Á vef Sós­í­alista­flokks­ins er trún­að­ar­ráði lýst sem trún­aðar- og aðhalds­afli hreyf­ing­ar­innar. „Hlutverk hennar er að skera úr um ágrein­ings­mál sem geta komið upp á milli félags­manna. Trún­að­ar­ráð skal beita sér fyrir vönd­uðum starfs­háttum, góðum sam­skiptum, virð­ingu fyrir per­sónum og jafn­rétti milli ein­stak­linga í starfi flokks­ins,“ segir á síð­unni.

„[Mál gætu varðað] meinta ósæmi­lega fram­komu félags­manns við aðra félags­menn eða á opin­berum vett­vangi“

„Mál sem trún­að­ar­ráð gæti þurft að taka fyrir gætu varðað t.d meint afglöp stjórn­ar­manna í emb­ætti eða meinta ósæmi­lega fram­komu félags­manns við aðra félags­menn eða á opin­berum vett­vangi,“ segir enn­fremur.

Trún­að­ar­ráð hefur heim­ild til að veita félags­mönnum skrif­lega áminn­ingu eða víkja þeim úr flokknum. „Að jafn­aði skal félags­mönnum ekki vikið úr flokknum eða emb­ætti nema að veittri a.m.k. einni áminn­ingu nema um sér­stak­lega alvar­leg til­vik ræði,“ segir á síð­unni.

„Til að víkja ein­stak­ling úr flokknum skal trún­að­ar­ráð almennt virkja slembival­inn 30 manna hóp til að fara yfir málið og meta rétt­mæti þess. Ein­stak­ling­ur­inn sem um ræðir hefur ávallt and­mæla­rétt til að skýra sína hlið fyrir trún­að­ar­ráði eða slembivaldna hópnum skyldi hóp­ur­inn vera kall­aður til. Ef allir aðilar máls eru sam­mála að mál­efnið skuli vera leyst í trún­aði skal málið útkljáð af trún­að­ar­ráði án aðkomu slembival­ins hóps. Félags­mað­ur­inn hefur rétt til að skjóta ákvörðun um brott­vísun sína til aðal­fundar.“

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár