Karl Héðinn segir af sér

Stjórn­ar­maður í Sós­í­alista­flokknum mun ekki leiða ung­liða­hreyf­ingu flokks­ins áfram eftir að hann greindi frá sam­bandi sínu við unga konu þegar hann starf­aði með ung­liða­hreyf­ingu Pírata.

Karl Héðinn segir af sér
Karl Héðinn Krist­jáns­son Stjórn­ar­maður Sós­í­alista­flokks­ins hættir sem leið­togi ung­liða­hreyf­ing­ar­innar.

K

arl Héðinn Krist­jáns­son, stjórn­ar­maður í fram­kvæmda­stjórn Sós­í­alista­flokks­ins, hefur sagt af sér sem for­seti ROÐA, ung­liða­hreyf­ingar flokks­ins.

Hann tekur ekki fram hvort hann muni halda áfram í fram­kvæmda­stjórn flokks­ins.

Karl Héðinn til­kynnti um þetta á Facebook síðu sinni í dag. „Ég vil hér með til­kynna að ég hef stigið til hliðar sem for­seti ROÐA,“ skrifar Karl Héðinn. „Sú ákvörðun var tekin eftir umhugsun og með hags­muni hreyf­ing­ar­innar að leið­ar­ljósi. Ég er ótrú­lega stoltur af því sem við höfum byggt saman und­an­farin ár, og þakk­látur fyrir sam­starfið, bar­átt­una og traustið sem mér hefur verið sýnt.“

Karl Héðinn greindi frá því nýverið að hann hefði átt í sam­bandi við unga konu þegar hann starf­aði innan ung­liða­hreyf­ingar Pírata. „Á síð­ustu vikum hefur komið upp umræða vegna sam­bands sem ég átti, þegar ég var 22 ára gam­all, við tölu­vert yngri mann­eskju. Þetta sam­band átti sér stað utan vett­vangs ROÐA og löngu áður en ég tók að mér for­ystu­hlut­verk í félag­inu. Enginn innan hreyf­ing­ar­innar hefur lýst nei­kvæðri reynslu af mér, en ég geri mér grein fyrir því að sam­bandið og þögn mín um það hefur vakið gagn­rýni og óör­yggi, sér­stak­lega í hreyf­ingu sem leggur áherslu á jafn­rétti, öryggi og traust,“ skrifar hann.“

„Mér finnst mik­il­vægt að segja þetta skýrt: Ég hef aldrei litið á neina mann­eskju sem „auð­veldan feng“ né ætlað mér að nýta aðstæður mér í hag. Þótt það hafi aldrei verið ætl­unin geri ég mér nú betur grein fyrir því hvernig slíkt sam­band getur vakið áleitnar spurn­ingar og það ber að taka alvar­lega. Ég geri mér jafn­framt grein fyrir því að dóm­greind mín hefði átt að vera betri á sínum tíma og að þögn mín um sam­bandið í upp­hafi þátt­töku minnar í ROÐA hefur valdið skilj­an­legu óör­yggi,“ bætir Karl Hérðinn við.

Eins og áður segir tekur Karl Héðinn ekki fram hvort hann muni sitja áfram í fram­kvæmda­stjórn Sós­í­alista­flokks­ins. „Ég lít svo á að ábyrgð felist ekki aðeins í gerðum, heldur líka í gagn­sæi, við­kvæmni og vilj­anum til að læra og vaxa,“ skrifar hann. „Ég harma mjög að aðrir upp­lifðu van­líðan í tengslum við þetta mál og vona að þessi yfir­lýs­ing skýri afstöðu mína og fyr­ir­ætl­anir. Framtíð mín liggur áfram í félags­legri bar­áttu, en ég mun nú beina athygli minni að öðrum sviðum, leggja mitt af mörkum með nýjum hætti og ein­beita mér að því sem ég get best. Bæði innan flokks­ins og í öðrum félags­legum og skap­andi verk­efnum. Með hlýju og von um sam­stöðu í áfram­hald­andi bar­áttu.“

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár