Verðbólga aftur upp – flugfargjöld og veitingastaðir hækka mest

Verð­bólgu­tölur halda áfram að sveifl­ast í kringum fjögur pró­sent, líkt og þær hafa gert frá því í febr­úar. Vísitala neyslu­verðs hækk­aði um 0,84 pró­sent í júní, sem þýðir að tólf mán­aða verð­bólga mælist nú 4,2 pró­sent – hækkun um 0,4 pró­sentu­stig frá síð­asta mán­uði.

Vísitala neyslu­verðs hækk­aði um 0,84 pró­sent í júní, sam­kvæmt nýj­ustu tölum Hag­stof­unnar. Vísitala án hús­næðis hækk­aði um 0,90 pró­sent. Þetta þýðir að tólf mán­aða verð­bólga – sem er það sem gjarnan er átt við þegar talað er um verð­bólgu – mælist nú 4,2 pró­sent. Það er hækkun frá síð­asta mán­uði, þegar verð­bólgan mæld­ist 3,8 pró­sent.

Verð­bólga hefur sveifl­ast í kringum fjögur pró­sent síðan í febr­úar. Þá mæld­ist hún 4,2 pró­sent, lækk­aði í 3,8 pró­sent í mars, hækk­aði aftur í 4,2 pró­sent í apríl og féll svo á ný í 3,8 pró­sent í maí. Þessar mæl­ingar minna á þró­un­ina vor og sumar 2021, þegar verð­bólgan hélt sig rétt yfir fjögur pró­sent í nokkra mán­uði, áður en hún rauk upp í nær tíu pró­sent fram á sum­arið 2022.

Helstu liðir sem drógu verð­bólg­una upp nú í júní voru flug­far­gjöld til útlanda, sem hækk­uðu um 12,7 pró­sent og höfðu 0,27 pró­sent …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár