Svört skýrsla OECD um menntun Íslendinga

Íslend­ingar geta búist við að fram­leiðni minnki um 5% vegna versn­andi mennt­unar. Sér­stak­lega er varað við að menntun inn­flytj­enda er verri en ann­ars staðar.

Svört skýrsla OECD um menntun Íslendinga
Skóla­starf OECD gagn­rýnir aðal­námskrá og skort á sam­ræmdum prófum. Mynd: Golli

Ný skýrsla OECD, Efnahags- og fram­fara­stofn­unar Evrópu, um efna­hags­horfur á Íslandi dregur mynd af hruni í menntun íslenskra barna sem mun verða þjóð­fé­lag­inu dýr­keypt þegar fram í sækir. Fjallað er horfur í íslenska hag­kerf­inu í dag í nýrri stöðu­skýrslus­sem kemur út á tveggja ára fresti.

Í skýrsl­unni er sér­stak­lega lýst áhyggjum af „minnk­andi grunn­færni“ íslenskra barna í PISA-könn­unum, sem eru sam­ræmd könn­ar­próf í Evrópu.

„Meira en 40 stiga lækkun á með­al­tals­ein­kunn Íslands í PISA frá 2006 til 2022 gæti dregið úr fram­leiðni um meira en 5% til lengri tíma litið,“ segir í skýrsl­unni.

Innflytjendur mun verr staddir

Lélegur árangur í menntun inn­flytj­enda vekur sér­stakar áhyggjur skýrslu­höf­unda. 

„Munurinn á PISA-ein­kunnum nem­enda með inn­flytj­enda­bak­grunn og inn­fæddra nem­enda er einn sá mesti á Íslandi innan OECD-ríkj­anna. Meira en helm­ingur inn­flytj­enda­nem­enda skortir lesskiln­ing til að geta haldið áfram í námi eða farið út á vinnu­markað. Aukinn stuðn­ingur við börn inn­flytj­enda, einkum með auknu íslensku­námi, myndi stuðla að betri árangri í skóla og á vinnu­mark­aði.“

Eitt af því sem OECD varar við er lítil yfir­sýn yfir árangur í námi, meðal ann­ars vegna þess að ekki eru til staðar sam­ræmd próf.

„Mikið dreif­stýrt skóla­kerfi Íslands hefur marga kosti, en ríkið hefur tak­markað eft­ir­lit með frammi­stöðu skóla og nem­enda. Sam­an­burð­ar­gögn um inn­leið­ingu stefnu og náms­fram­vindu vantar. Inn­leið­ing sam­ræmdra prófa, sem áætluð er, mun hjálpa til við að meta betur árangur nem­enda og skóla og styðja mark­viss inn­grip þar sem þeirra er þörf.“

Sömu­leiðis er aðal­námskrá gagn­rýnd.

„Aðal­námskráin er til­tölu­lega víð­tæk og óskýr. Hún var ein­földuð að ein­hverju leyti árið 2024 sem hluti af inn­leið­ingu Mennta­stefnu Íslands 2030. Þó gæti aukin áhersla á kjarna­greinar hjálpað til við að efla grunn­færni eins og læsi og stærð­fræði. Þar að auki ætti nýtt kerfi sam­ræmdra prófa og mats að vera vel sam­ræmt námskránni.“

OECD mælir meðal ann­ars með kjara­bótum fyrir kenn­ara.

„Hærri laun eða við­bót­ar­laun við erf­iðar aðstæður, í tengslum við bætt mat á kenn­urum, gætu hjálpað til við að laða að hæf­ari kenn­ara.“

Skýrslu OECD má í heild lesa hér.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Ég hef aldrei getað skilið hver rökin geta verið fyrir því að það komi hæfari kennarar til starfa ef launin eru há. Er ekki líklegra að metnaður (og þá hæfnin) ráði för þegar launin gera það ekki.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár