Saga Írans 1: Fyrsta ríkið

Ír­an er nú skot­mark Ísra­els og Banda­ríkj­anna. Í þess­ari grein og fá­ein­um til við­bót­ar verð­ur saga rík­is­ins rak­in. Hér seg­ir frá Ela­mít­um og svo komu nýrr­ar þjóð­ar

Saga Írans  1: Fyrsta ríkið
Elamískar konur. Svona voru í hátt og klæðaburði þær fyrstu írönsku konur sem við eigum myndir af.

Íran er fjöllótt land og mest eru Zagros-fjöllin sem liggja meðfram öllum vesturjaðri landsins. Þau eru um 1.600 kílómetra löng og hæstu tindar þeirra eru yfir fjögurra kílómetra háir. 

Annar meginfjallgarður landsins er Alborz, sunnan Kaspíhafs. Þar er að finna hæsta fjall Írans, Damavand, 5.610 metra hátt.

Íraní fáeinum dráttum

Það er eldfjall sem telst enn vera virkt þótt það hafi ekki gosið í meira en 7.000 ár. Damavand gnæfir yfir núverandi höfuðborg Tehran sem byggð er í 1.300-1.700 metra hæð.

Súmerar í Mesópótamíu

Alborz-fjöll og Zagros-fjöll ljúkast um víðáttumikla hásléttu í miðju Íran en í austurhluta landins eru svo ýmsir fjallgarðar sem nú marka skil landsins og Afganistans og Pakistans.

Fólk hefur búið í fjöllunum og á hásléttunni, sem og á hinni gróðursælu strönd Kaspíhafsins, frá örófi alda. Fyrir um 5.000 árum reis siðmenning við fljótin miklu handan Zagros-fjalla, Efrat og Tígris. Þar voru Súmerar komnir og samskipti fjallabúa í Íran við þá og síðan aðra íbúa Mesópótamíu (Íraks) höfðu heilmikil áhrif á þróun mála sérstaklega í vesturhluta Írans.

Elamítar engum skyldir

Fyrsta raunverulega ríkið í Íran var risið fyrir 4.700 árum. Það nefndist Elam og var við lýði í 2.000 ár. Elam-búar höfðu mikil samskipti við Mesópótamíu en voru þó af alveg sérstöku þjóðerni og tungumál þeirra var til dæmis ekki vitund skylt tungum nágrannaþjóðanna, hvorki í Írak né Íran.

Þeir höfðu sitt eigið trúarkerfi með sínum eigin guðum og athyglisvert að gyðjur léku þar stærra hlutverk en í trúarbrögðum nágrannanna.

Elamítar stunduðu kvikfjárrækt — héldu kindur og geitur ekki síður en nautgripi — en voru líka mjög flinkir iðnaðarmenn og málmsmiðir. Þeir þróuðu eigið ritmál á leirtöflum en sorglega lítið hefur varðveist á elamísku.

Rændu guði

Þeir voru dugmiklir hermenn og réðust öðru hvoru niður úr fjöllunum og herjuðu á Mesópótamíu. Þeir eru taldir ráðið endanlegum niðurlögum Súmera og fyrir 3.300 árum lögðu þeir undir sig Babýlon og fluttu frægt líkneski af meginguði Babýloníumanna, Mardúk, til höfuðborgar sinnar Súsa.

Þótti það skelfileg niðurlæging fyrir hina frægu Babýoníumanna sem höfðu þá um langt skeið verið mesta veldið á svæðinu.

Fyrir um 2.600 árum þá lutu Elamítar hins vegar í lægra haldi fyrir nýju og grimmu herveldi úr uppsveitum Mesópótamíu. Það voru Assýringar og þeir gengu í raun milli bols og höfuðs á Elamítum sem gufuðu við það upp úr sögunni.

Þá hafði hins vegar ýmislegt mjög afdrifaríkt gerst í Íran.

Þjóðflokk langar í ferðalag

Fyrir rúmlega 4.000 árum lagði þjóðflokkur einn upp í ferðalag. Upphafsstaðurinn er ekki alveg á hreinu en var sennilega í Mið-Asíu. Það er að minnsta kosti hin klassíska kenningin. Aðrir telja að hinn upprunalegi þjóðflokkur hafi búið vestar. En hvað sem því líður fór hann í ferðlag.

Væntanlega hafa það verið einhvers konar loftslagsbreytingar eða hrun vistkerfis sem ráku þjóðflokkinn af stað. Og einhvers staðar á leiðinni skipti flokkurinn sér í tvennt.

Einn hópur hélt í vesturátt og endaði í Evrópu en annar hélt í suður og endaði á Indlandi.

Verndargripur frá tímum Elamíta.Þeir voru dverghagir í gull- og silfursmíði.

Á löngum tíma fjölgaði svo mjög í báðum hópum að til urðu margar þjóðir en töluðu þó allar ýmis afbrigði hinnar upphaflegu tungu. Þau sem fóru til Evrópu kallast indóevrópsk en hin indóírönsk.

Athugið að þetta er flókin saga og margt á huldu um hana, en nokkurn veginn svona var þetta!

Og hópurinn sem fór til Indlands og gat á endanum af sér Hindúa, hann skildi sig eftir nokkra ættbálka í fjöllunum í Austur-Íran.

Medar og Persar

Það var svo fyrir um 3.000 árum sem tveir indóíranskir ættbálkar þar í fjöllunum tóku að fikra sig í vesturátt, yfir hásléttuna í miðju Íran og upp í Zagros-fjöllin.

Annar settist að fyrir norðan Elamíta og var þá farinn að kallast Medar. Hinn settist að fyrir sunnan Elam á hrjóstrugu svæði við mynni Persaflóa, sem nú heitir.

Sá flói er náttúrlega við þá kenndur því þetta voru Persar.

Og í sögulegum og altént málfræðilegum skilningi eru Persar því frændur okkar Evrópumanna (vissulega fjarskyldir) sem til dæmis Arabar eða Gyðingar eru ekki.

Tækifæri Persa

Og þegar ríki Elamíta féll í duftið fyrir Assýríumönnum, þá fengu bæði Medar og síðan Persar frábært tækifæri til að láta að sér kveða.

Og það tækifæri gripu þeir hikstalaust.

En áður hafði annað gerst og raunar enn merkilegra.

Pinikir var ein merkasta gyðja Elamíta.Hún bjó svo vel að vera vængjuð.

Hinn upprunalegi þjóðflokkur í Mið-Asíu hafði bersýnilega trúað á allskonar náttúruvætti sem svo þróaðist í samfélag guða sem mennirnir áttu allt undir.

Guðirnir voru allir fulltrúar náttúruafla og gátu í raun farið með mennina eins og þeim sýndist. Þeir voru duttlungafullir og yfirgangssamir við mannfólkið, hefndu sín á þeim sem sýndu þeim ekki nægilega virðingu en gátu launað þeim vel sem hlýddu þeim og færðu þeim skikkanlegar fórnir.

Spámaður kemur fram!

Þetta guðasafn þróaðist og breyttist í tímans rás en samt ekki meira en svo að rætur þess eru enn auðgreinanlegar í svo ólíkum trúarbrögðum sem Ásatrú norrænna manna, Ólympsguðum Forn-Grikkja og hinu hindúíska guðasafni.

En einhvern tíma meðan indóíranskir þjóðflokkar bjuggu enn í fjöllunum í Austur-Íran, kannski í Baktríu, sem sé áður en þeir fluttust til Zagros-fjalla, þá kom fram spámaður eins og spámönnum er svo títt.

Og þessi spámaður átti eftir að breyta öllu í sögu Persa.

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Fjölskyldurnar sem eiga fiskana í sjónum
1
GreiningSjávarútvegsskýrslan

Fjöl­skyld­urn­ar sem eiga fisk­ana í sjón­um

Inn­an við tíu fjöl­skyld­ur eiga og stýra stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­um lands­ins. Þau fyr­ir­tæki sem skráð hafa ver­ið á mark­að eru enn und­ir stjórn, og að uppi­stöðu í eigu, þeirra ein­stak­linga sem fengu gjafa­kvóta. Fjár­fest­ing­ar eig­enda út­gerð­anna í öðr­um og óskyld­um grein­um nema tug­um millj­arða og teygja sig í maj­ónes­fram­leiðslu, skyndi­bitastaði, trampólín­garða og inn­flutn­ing á bleyj­um og síga­rett­um.
„Á ekki möguleika á að fá réttláta málsmeðferð“
3
Fréttir

„Á ekki mögu­leika á að fá rétt­láta máls­með­ferð“

Nauðg­un­ar­kær­an var felld nið­ur, en um­boðs­mað­ur Al­þing­is tek­ur und­ir að­finnsl­ur við rann­sókn lög­reglu, varð­andi at­riði sem hefðu getað skipt máli við sönn­un­ar­mat. Eft­ir at­hug­un á máli Guðnýj­ar S. Bjarna­dótt­ur sendi um­boðs­mað­ur Al­þing­is einnig rík­is­sak­sókn­ara ábend­ingu varð­andi varð­veislu gagna í saka­mál­um og árétt­aði mik­il­vægi þess að ákær­andi hafi öll gögn und­ir hönd­um þeg­ar hann tek­ur af­stöðu.
Komst loks í átröskunarmeðferð þegar veikindin voru orðin alvarleg
5
Viðtal

Komst loks í átrösk­un­ar­með­ferð þeg­ar veik­ind­in voru orð­in al­var­leg

El­ín Ósk Arn­ars­dótt­ir ákvað 17 ára að fara í „sak­laust átak“ til að létt­ast en missti al­gjör­lega tök­in og veikt­ist al­var­lega af átrösk­un. Hún lýs­ir bar­áttu sinni, ekki ein­ung­is við lífs­hættu­leg­an sjúk­dóm held­ur líka brot­ið heil­brigðis­kerfi þar sem fólk fær ekki hjálp fyrr en sjúk­dóm­ur­inn er orð­inn al­var­leg­ur, en dán­ar­tíðni vegna hans er sú hæsta á með­al geð­sjúk­dóma.

Mest lesið í mánuðinum

Forsprakki útifundar játaði fjárdrátt á leikskólanum Klettaborg
1
Fréttir

Forsprakki úti­fund­ar ját­aði fjár­drátt á leik­skól­an­um Kletta­borg

Sig­fús Að­al­steins­son, stofn­andi hóps­ins Ís­land - þvert á flokka, sem stend­ur fyr­ir úti­fund­um um hæl­is­leit­end­ur, ját­aði á sig fjár­drátt frá leik­skól­an­um Kletta­borg þeg­ar hann var for­stöðu­mað­ur þar. Hann vill ekki dæma hvort brot af því tagi séu nógu al­var­leg til að inn­flytj­end­ur sem gerð­ust sek­ir um þau ætti að senda úr landi.
Einhverfir á vinnumarkaði: Starfsmannaskemmtanir bara ólaunuð yfirvinna
4
Úttekt

Ein­hverf­ir á vinnu­mark­aði: Starfs­manna­skemmt­an­ir bara ólaun­uð yf­ir­vinna

Í at­vinnu­aug­lýs­ing­um er gjarn­an kraf­ist mik­illa sam­skipta­hæfi­leika, jafn­vel í störf­um þar sem þess ekki er þörf. Þetta get­ur úti­lok­að fólk, til að mynda ein­hverfa, sem búa yf­ir öðr­um mik­il­væg­um styrk­leik­um. Bjarney L. Bjarna­dótt­ir gerði tíma­mót­a­rann­sókn á þessu og legg­ur áherslu á að at­vinnu­rek­end­ur efli fötl­un­ar­sjálfs­traust.
Drengir kvörtuðu undan kennara og var meinað að sitja kennslustundir
6
Úttekt

Dreng­ir kvört­uðu und­an kenn­ara og var mein­að að sitja kennslu­stund­ir

Tólf ára gaml­ir dreng­ir leit­uðu til skóla­stjóra vegna meints of­beld­is af hálfu kenn­ara. Í kjöl­far­ið var þeim mein­að að sitja kennslu­stund­ir hjá kenn­ar­an­um. Ann­ar baðst af­sök­un­ar eft­ir tvær vik­ur og fékk þá að koma aft­ur í tíma. Hinn sætti út­skúf­un í tvo mán­uði, áð­ur en skól­an­um var gert að taka dreng­inn aft­ur inn í tíma. For­eldr­ar drengs­ins segja kerf­ið hafa brugð­ist barn­inu og leit­uðu að lok­um til lög­reglu.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár