Guðmundur Ingi hættir í Flokki fólksins

Guð­mund­ur Ingi Krist­ins­son, fyrr­ver­andi ráð­herra, er geng­inn úr Flokki fólks­ins. Hann sit­ur áfram á þingi og seg­ist styðja rík­is­stjórn­ina.

Guðmundur Ingi hættir í Flokki fólksins

Guðmundur Ingi Kristinsson hefur sagt sig úr Flokki fólksins en hyggst sitja áfram á Alþingi sem óháður þingmaður. Þetta kom fram í yfirlýsingu sem lesin var upp við upphaf þingfundar í dag. 

Í yfirlýsingunni segir Guðmundur Ingi að þrátt fyrir úrsögnina muni hann áfram styðja ríkisstjórnina.

Formaður Flokks fólksins, Inga Sæland, segir í yfirlýsingu að brotthvarf hans veki mikla eftirsjá. Þar kemur fram að Guðmundur Ingi hafi fylgt flokknum frá upphafi og verið óþreytandi baráttumaður fyrir helstu málefnum hans, meðal annars bættum kjörum eldri borgara og öryrkja.

Hún segir jafnframt að það sé sárt að hann kjósi að starfa utan þingflokksins nú þegar flokkurinn sé kominn í ríkisstjórn og hafi þar með aukin áhrif til að fylgja stefnumálum sínum eftir.

„Það er hins vegar með stjórnmálin eins og annað í lífinu, hver og einn verður að ráða sínum næturstað,“ segir í yfirlýsingu Ingu, þar sem hún þakkar honum fyrir gott samstarf og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni.

Í yfirlýsingu sem hann sendi á fjölmiðla kom fram að ástæðan fyrir úrsögninni væri trúnaðarbrestur sem varðar persónuleg samskipti innan flokksins. Hann hyggst ekki tjá sig frekar um málið að sinni.

Fréttin hefur verið uppfærð.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Í minningu afastráksins
2
Viðtal

Í minn­ingu afastráks­ins

Gunn­ar Rand­vers­son starf­aði í ára­tugi sem tón­list­ar­kenn­ari, hef­ur skrif­að ljóð og smá­sagna­safn. Áföll­in hafa mót­að líf hans. Ell­efu ára gam­all horfði hann á föð­ur sinn deyja, 21 árs missti hann móð­ur sína og fyr­ir þrem­ur ár­um lést fjög­urra ára gam­all dótt­ur­son­ur hans. Í ljóða­bók­inni Hvernig er sökn­uð­ur á lit­inn? eru ljóð skrif­uð í minn­ingu litla drengs­ins. Eft­ir frá­fall hans leit­aði Gunn­ar í kirkj­una.

Mest lesið í mánuðinum

„Ég kom úr mjög nánu, fallegu og stóru samfélagi kynlífsverkafólks“
2
Viðtal

„Ég kom úr mjög nánu, fal­legu og stóru sam­fé­lagi kyn­lífs­verka­fólks“

Eft­ir út­skrift úr há­skóla sótti Logn um rúm­lega hundrað störf en ekk­ert kom út úr því. Hán átti góða vini í kyn­lífs­vinnu sem hún leit­aði til. Síð­ar stofn­aði hán Rauðu regn­hlíf­ar­ina, sam­tök kyn­lífs­verka­fólks á Ís­landi. „Sam­stað­an sem kann að eiga sér stað með­al kyn­lífs­verka­fólks er eitt það fal­leg­asta og dýr­mæt­asta sem ég hef upp­lif­að í mínu lífi.“

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu