Rukkuð um 1.500 króna hátíðargjald á veitingahúsi í miðbænum: „Algjörlega út í hött“

Tvær konur voru krafðar um 1.500 króna „hátíð­ar­gjald“ fyrir að hafa setið við borð á veit­inga­húsi í miðbæ Reykja­víkur í gær, 17. júní. Formaður Neyt­enda­sam­tak­anna segir athæfið óheim­ilt hafi þeim ekki verið gert við­vart um gjaldið fyr­ir­fram.

Rukkuð um 1.500 króna hátíðargjald á veitingahúsi í miðbænum: „Algjörlega út í hött“

Þegar Ólöf Dóra Bartels Jóns­dóttir ætl­aði að greiða reikn­ing­inn fyrir mál­tíð á Hressó við Aust­ur­stræti í gær brá henni í brún. Henni og vin­konu hennar var tjáð að þær ættu að greiða 1.500 krónur auka­lega fyrir að hafa setið við borð inni á staðnum. Á reikn­ingi var til­tekið að þetta væri svo­kallað hátíð­ar­gjald, eða „Holiday fee“, enda þjóð­há­tíð­ar­dag­ur­inn í gær.

„Við vorum nátt­úr­lega hvumsa. Því við höfðum aldrei lent í þessu áður,“ segir Ólöf Dóra við Heim­ild­ina. 

Hvorugri þeirra var, að sögn Ólafar Dóru, tjáð að svona gjald væri inn­heimt fyrr en þær hugð­ust borga reikn­ing­inn.

„Við vorum ekki þær einu sem ekki vissu af þessu gjaldi fyr­ir­fram. Við spurðum við­skipta­vini á staðnum hvort þeir hefðu verið látnir vita að það væri 1.500 króna gjald fyrir borðið. Þeir höfðu ekki heldur heyrt af því,“ bætir hún við.

Á meðan þær stóðu og veltu þessu fyrir sér gekk annar hópur fólks inn á veit­inga­stað­inn og vin­kona Ólafar Dóru til­kynnti þeim um gjald­tök­una. „Þau nátt­úru­lega sneru við. Sögðu að þau létu ekki bjóða sér það.“

Óheimilt ef gjald er ekki tilgreint fyrirfram

Heim­ildin hafði sam­band við Breka Karlsson, for­mann Neyt­enda­sam­tak­anna, og bar atvikið undir hann. Breki hafði ekki heyrt af atvik­inu, né nokkrum sam­bæri­legum til­fellum slíkrar gjald­töku á Íslandi.

„Þetta er í fyrsta skipti sem ég heyri þetta. Það er að sjálfu sér ekki ólög­legt að rukka svona – ef það er skil­merki­lega sagt frá því fyr­ir­fram,“ útskýrir hann. „Hafi það ekki verið gert er óheim­ilt að rukka svo­leiðis gjald. Það fer algjör­lega eftir því hvort hún vissi af þessu fyr­ir­fram eða ekki, hvort þetta sé heim­ilt.“

„Á næst að rukka fyrir stól? Fyrir hnífa­pör? Mér finnst svo­lítið langt seilst, verð ég að segja“
Breki Karlsson
for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna

For­mað­ur­inn bendir á að það sé frjálst verð­lag á Íslandi, en það þurfi að lúta ákveðnum lög­málum. „Það þýðir ekk­ert að rukka svona eftir á. Það er bara út í hött. Fólk þarf að geta tekið ákvörðun um það hvað það er að kaupa á hverjum tíma, og hvort það sam­þykki svona gjöld eða ekki.“

Gjald­takaVin­kon­urnar skiptu hátíð­ar­gjald­inu í tvennt og greiddu því 750 krónur hvor.

Það er greini­legt af máli Breka að honum þykir ekki mikið til gjald­tök­unnar koma.

„Þetta er svo­lítið skrítið, finnst mér, að rukka svona auka­lega fyrir setu á borði. Þetta er eig­in­lega út í hött. Það fylgir því að borða á veit­inga­stað að sitja við borð. Á næst að rukka fyrir stól? Fyrir hnífa­pör? Mér finnst svo­lítið langt seilst, verð ég að segja. Svo þurfa allir að nota súr­efni inni á veit­inga­stað. Ætla þeir að rukka fyrir það líka? Það nær ekki nokk­urri átt.“

Búin að láta Neytendasamtökin og Neytendastofu vita

Ólöf Dóra kemst næstum alveg eins að orði og Breki þegar hún er spurð út í álit sitt á þessum við­skipta­háttum.

„Mér finnst þetta algjör­lega út í hött,“ segir hún og veltir því upp hvort aukna gjald­töku megi rekja til ferða­mennsku á Íslandi. „Veit­inga­hús­eig­endur halda kannski að túristar láti allt yfir sig ganga, því þeir halda kannski að þetta sé allt venju­legt. En við Íslend­ingar vitum betur. Að þetta er ekki eðli­legt.“

Hún bætir því við að ef borðið átti að kosta 1.500 krónur þá hefði átt að gera þeim það við­vart fyr­ir­fram. „Til þess að geta tekið upp­lýsta ákvörðun um hvort við ætl­uðum að sitja þarna fyrir 1.500 kall. Ég velti fyrir mér hvort þetta sé angi af græðg­i­svæð­ingu í kringum túris­mann.“

Sjálf hefur Ólöf Dóra til­kynnt málið bæði til Neyt­enda­sam­tak­anna og Neyt­enda­stofu. „Þetta er komið í ferli,“ segir hún. 

Segir fólki hafa verið gert viðvart

Bragi Skafta­son, eig­andi Hressó, segir að á stór­há­tíða­dögum greið­ist ríf­lega 90 pró­senta álag á öll laun starfs­manna.

„Til að koma til móts við það lögðum við á stór­há­tíð­ar­gjald og til­kynntum öllum við­skipta­vinum um gjaldið áður en þeim var vísað til borðs. Mögulegt er að það hafi orðið ein­hver mis­brestur á því í ein­staka til­viki og þá að sjálf­sögðu höfum við boð­ist til að end­ur­greiða gjaldið ef það var lagt á.“ 

Bragi segir að það gjald sem inn­heimt hafi verið á þjóð­há­tíð­ar­dag­inn hafa numið minna en einum þriðja af stór­há­tíð­ar­á­lagi starfs­manna. „Við munum hugsa okkur tvisvar um í framtið­inni um hvort og þá hvernig við högum opnun á stór­há­tíð­ar­dögum.“

Fréttin hefur verið upp­færð með við­brögðum eig­anda Hressó.

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • RE
    Regína Eiríksdóttir skrifaði
    Ég hef verið rukkuð erlendis 1,5 evru. Sem eru rúmar 200 krónur en þá er borðið dúkað með tauservíettum
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár