Halla Hrund minntist vinkonu sem var myrt í Minnesota

Þing­maður Fram­sókn­ar­flokks missti bekkj­ar­systur sína og kollega í skotárás í Banda­ríkj­unum á laug­ar­dag.

Halla Hrund minntist vinkonu sem var myrt í Minnesota
Halla Hrund Loga­dóttir Þing­maður var­aði við skautun í sam­fé­lag­inu sem teygi anga sína til Íslands. Mynd: Golli

Halla Hrund Loga­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, syrgði í pontu Alþingis í dag vin­konu sína, Melissu Hortman, þing­mann Demókrata á rík­is­þingi Minnesota í Banda­ríkj­unum.

Melissa Hortman og eig­in­maður hennar Mark voru skotin til bana á heim­ili sínu í Brooklyn Park, Minnesota, 14. júní síð­ast­lið­inn.

Melissa HortmanHortman og eig­in­maður hennar voru skotin til bana á heim­ili sínu á laug­ar­dag.

„Heim­ur­inn varð fátæk­ari um helg­ina þegar fyrrum bekkj­ar­systir mín, Melissa Hortman, og mað­ur­inn hennar voru myrt í Banda­ríkj­unum,“ sagði Halla Hrund undir liðnum störf þings­ins í morgun. „Melissa var ein af sjö­tíu mann­eskjum sem morð­ing­inn hafði á ákveðnum lista um stjórn­mála­menn sem hann var mál­efna­lega ósam­mála. Mál­efna­lega ósam­mála.

Melissa, hún var glað­lynd, hún var algjör­lega hroka­laus, hún var hlý og með mikla ástríðu fyrir sínu sam­fé­lagi. Hún var ein af mínum fyr­ir­myndum í stjórn­málum því henni tókst ein­hvern veg­inn að sam­eina það að vera hlýr, fastur fyrir, tala fyrir þeim sem minna mega sín og hafa lang­tíma­sýn.“

Vance Boelter hefur verið hand­tek­inn fyrir að skjóta þau og önnur hjón, þing­mann­inn John Hoffman og konu hans Yvette. Í fórum hans fannst listi yfir 70 manns sem voru skot­mörk hans, þar á meðal fleiri Demókratar og heil­brigð­is­starfs­fólk sem sinnir þung­un­ar­rofi.

Hvetur til samtals og samvinnu

Halla Hrund sagði að hún og Melissa hafi deilt áhuga sínum á orku­málum og kven­rétt­inda­málum. „Hún var þekkt fyrir að ná árangri í gegnu sam­stöðu,“ sagði Halla. „Hún var þekkt fyrir að geta byggt brýr og dregið fólk saman.“

„Hún var þekkt fyrir að ná árangri í gegnu sam­stöðu“

Hún sagði Melissu ekki aðeins hafa beitt sér fyrir málum sem vörð­uðu hennar eigin kjós­endur. „Fyrir mér er þessi pólarís­er­ing sem birt­ist í þessum hræði­legu atburðum í Banda­ríkj­unum og teygir anga sína víðar, líka í orð­ræðu hér á landi, dæmi um það að það er mik­il­vægt fyrir okkur stjórn­mála­menn að teygja okkur yfir gang­inn, vinna saman að mála­miðlun, hlusta á mót­mæli ólíkra hópa, taka orð­ræð­una alvar­lega, án þess að tala niður sjón­ar­mið og upp­lifun fólks,“ sagði Halla. „Sýna að við getum verið ósam­mála en samt fundið leiðir í gegnum sam­vinnu, hlustun og sam­tal.“

Halla Hrund vitn­aði í orð Melissu þess efnis að ágrein­ing eigi ekki að forð­ast í stjórn­málum, heldur vinna úr honum. „Höfum slík orð hug­föst þegar við reynum að ná lend­ingu hér í þing­inu. Á meðan sam­vinna og mála­miðl­anir skila kannski minni skrefum fyrir árangur og mark­mið ein­stakra flokka, þá skilar slíkt oft sam­hent­ara þjóð­fé­lagi. Og það er mikið virði í því.“

Kjósa
34
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ólafur Garðarsson skrifaði
    Viss pólitísk öfgahyggja hefur gengið yfir Bandaríkin síðan um aldamótin. Hún hefur bara stigmagnast og að mínu viti er nú um mundir hámark þessarar þróunar. Vonandi tekst þeim að snúa þessu við en hér er töluvert af fólki undir áhrifum af þessu. Fólk þarf að líta í eigin barm. Hvað erum við að hlusta á daginn út og daginn inn? Nokkur merki um pólitískar öfgar eru t.d. ofur áhersla á flóttamenn og innflytjendur sem uppsprettu alls ills, ofurtrú á einkrekstur og úthúðun alls sem gerist á vegum hins opinbera. Stjórnmálamenn eru ekki lengur gagnrýndir heldur úthúðaðir í öfgakenndum lýsingum ofl. í þeim dúr. Félagsmiðlar virðast magna upp pólariseringar.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár