Telur sig hafa verið skotna með loftbyssu í miðbænum

Þegar Halla Kristín Ein­ars­dóttir var hæfð í kinn­ina á Lauga­veg­inum í gær­kvöldi hugs­aði hún strax að for­dómar gegn hinsegin fólki byggju þar að baki. „En svo veit maður ekki, kannski voru bara ein­hverjir dólgar að skjóta á ein­hverjar konur á Lauga­veg­inum.“ Sam­skipta­stjóri Sam­tak­anna '78 segir aðkast gagn­vart hinsegin fólki hafa færst í auk­ana síð­ast­liðin ár.

Telur sig hafa verið skotna með loftbyssu í miðbænum
Vinkonur Halla Kristín og Omel segj­ast báðar hafa tekið eftir auknu aðkasti gegn hinsegin fólki síð­ast­liðin ár. Mynd: Aðsend

„Ég var að stíga út úr leigu­bíl með vin­konu minni á horn­inu á Laug­ar­vegi og Bar­óns­stíg þegar ég fæ eitt­hvað í and­litið. Ég lít undr­andi í kringum mig og sé að það er svartur bíll rétt undan. Þegar ég horfi á hann þá gefur hann í og fer niður Lauga­veg­inn.“

Svona lýsir Halla Kristín Ein­ars­dóttir atviki sem hún lenti upp úr klukkan tíu í gær­kvöldi, en hún telur að hún hafi verið skotin í kinn­ina með loft- eða túttu­byssu. „Þetta fór í kinn­beinið á mér, ekk­ert langt frá aug­anum. Ég er ekk­ert stórslösuð, en það kom smá far og roði. Ég var aðal­lega hissa fyrst og að reyna að átta mig á því hvað hefði gerst,“ segir hún. 

„Þetta var rosalega óþægilegt“

Vinkona Höllu lýsir atvikum svo: „Við vorum bara að skunda heim og ég heyri smell­inn þegar kúlan lendir í and­lit­inu á henni. Ég sá ekki …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár