Völdu ódýrasta hönnuð Brákarborgar sem uppfyllti ekki hæfisskilyrði

Innra eft­ir­lit Reykja­vík­ur­borgar telur að sækja megi skaða­bætur til verk­taka og/eða ráð­gjafa sem komu að bygg­ingu leik­skól­ans Brák­ar­borg. Leik­skól­anum var lokað síð­asta sumar og úttekt kynnt í borg­ar­ráði í dag.

Völdu ódýrasta hönnuð Brákarborgar sem uppfyllti ekki hæfisskilyrði
Brák­ar­borg Leik­skól­anum var lokað síð­asta sumar vegna við­gerða. Mynd: Golli

Innri end­ur­skoðun og ráð­gjöf (IER) Reykja­vík­ur­borgar telur rétt að skoða hvort sækja eigi skaða­bætur til verk­taka eða ráð­gjafa sem komu að bygg­ingu leik­skól­ans Brák­ar­borgar.

Borg­ar­ráð fjall­aði um úttekt IER á fundi sínum í dag og sam­þykkti að skipa starfs­hóp til að vinna að umbótum er varða eft­ir­fylgni á hönnun, fram­kvæmdum og eft­ir­liti með fram­kvæmdum á vegum borg­ar­innar.

Í úttekt­inni kemur meðal ann­ars fram að Arkamon ehf., fyr­ir­tækið sem hann­aði burð­ar­virki leik­skól­ans, hafi ekki mætt kröfum. „IER telur að burð­ar­virk­is­hönn­uður hafi ekki upp­fyllt hæf­is­skil­yrði fyrir burð­ar­virk­is­hönnun skóla­bygg­ingar en hann var val­inn á grund­velli lægsta verðs,“ segir í sam­an­tekt IER.

„Hann var val­inn á grund­velli lægsta verðs“

Þá lágu burð­ar­virk­is­upp­drættir ekki fyrir þegar útboð í bygg­ingu skól­ans voru opnuð 2021. „IER telur mik­il­vægt að ekki vanti í útboðs­gögn veiga­mikla verk­þætti í mann­virkja­gerð eins og burð­ar­virk­is­upp­drætti og grein­ar­gerð um burð­ar­hæfni bygg­ing­ar­innar m.t.t. fyr­ir­hug­aðrar notk­unar.“

Eft­ir­lits­að­ili verk­efn­is­ins, Verksýn hf., fær einnig gagn­rýni. „IER telur að umsjónar- og eft­ir­lits­að­ili hafi ekki staðið að öllu leyti skil á sínum verk­efnum sam­kvæmt útboðs­gögnum,“ segir í úttekt­inni. „Helst ber þar að nefna að ekki var unnin eft­ir­lits­á­ætlun, loka­skýrsla eða skila­grein og aðeins ein fram­vindu­skýrsla.“

Loks er það gagn­rýnt að verk­tak­inn, Þarfa­þing ehf., hafi einnig verið í hlut­verki bygg­ing­ar­stjóra, sem á að hafa eft­ir­lit með verk­inu.

Hundruð milljóna í lagfæringar

Reykja­vík­ur­borg flutti leik­skól­ann Brák­ar­borg í end­ur­byggt hús­næði við Klepps­veg 150-152 þar sem áður var kyn­lífstækja­búðin Adam og Eva. Kaup á eign­unum voru sam­þykkt 2020 og starf­semi leik­skól­ans hófst í lok sum­ars 2022. Fljót­lega um haustið bár­ust til­kynn­ingar um sprungur í hleðslu­veggjum leik­skól­ans. Nið­ur­staða könn­unar leiddi í ljós að bygg­ing­arnar upp­fylltu hvorki fyrir né eftir fram­kvæmdir gild­andi jarð­skjálfta­staðla og einnig var gerð athuga­semd varð­andi þök hús­anna í tengi­bygg­ingu.

Einar Þor­steins­sonFyrr­ver­andi borg­ar­stjóri lét loka hús­næði Brák­ar­borgar og kall­aði eftir úttekt.

Einar Þor­steins­son, þáver­andi borg­ar­stjóri, taldi nauð­syn­legt að rýma hús­næðið á meðan lag­fær­ing á burð­ar­virki hús­anna færi fram og óskaði eftir úttekt á því hvar ábyrgðin lægi í mál­inu. Var starf­semin flutt í bráða­birgð­ar­hús­næði í Ármúla.

End­an­legur kostn­aður við lag­fær­ing­arnar liggur ekki enn fyrir en skrif­stofa fram­kvæmda og við­halds mann­virkja (SFV) bauð verkið út í nóv­em­ber 2024 og var lægsta til­boð 223,2 millj­ónir króna. Verklok eru áætluð í sumar. „Þá er ótal­inn kostn­aður við skýrslur ráð­gjafa, hönnun, umsjón og eft­ir­lit og flutn­ing leik­skól­ans og leigu á öðru hús­næði,“ segir í úttekt­inni.

17 milljónir fyrir hvert leikskólapláss

Heild­ar­kostn­aður við leik­skól­ann vegna end­ur­bóta á hús­næði og lóð og kaupa á fast­eignum við Klepps­veg 150-152 nam sam­tals rúmum 2 millj­örðum króna. Þá er ótal­inn kostn­aður á þeim við­gerðum og end­ur­bótum sem standa yfir. Verkið fór því langt yfir áætlun. „Miðað við þau 100 börn sem inn­rituð voru hjá Brák­ar­borg árið 2022 kost­aði hvert pláss 17 m.kr., eða 1,7 m.kr. á hvern fer­metra,“ segir í úttekt­inni.

„Kostaði hvert pláss 17 m.kr., eða 1,7 m.kr. á hvern fer­metra“

„IER telur mik­il­vægt að umhverfis- og skipu­lags­svið (USK) meti heild­ar­kostnað vegna tjóns­ins þegar fram­kvæmdum við Brák­ar­borg lýkur og hvort sækja eigi skaða­bætur til verk­taka og/eða ráð­gjafa,“ segir í úttekt­inni.

Þarfa­þing ehf. var valið verk­taki í fram­kvæmd­irnar en sinnti einnig hlut­verki bygg­ing­ar­stjóra, sem hefur þá ábyrgð að hafa virkt eft­ir­lit með þeim sem koma að bygg­ing­unni og fram­kvæma reglu­legar úttektir. „IER telur að það að fela verk­tak­anum að ann­ast lög­bundið hlut­verk bygg­ing­ar­stjóra veiki eft­ir­lits­hlut­verk hans,“ segir í úttekt­inni. „Færi betur á því að hlut­verkið væri í höndum umsjónar- og eft­ir­lits­að­ila.“

Fjórtán úrbótatillögur

IER leggur að lokum til 14 úrbóta­til­lögur og listar þar fyrst upp hug­mynd­ina að sækja skaða­bætur til verk­taka og/eða ráð­gjafa. Þá er USK hvatt til að gera ítar­lega skoðun á burð­ar­virki við kaup á eldra hús­næði og mælt með því að fara ekki í útboð nema útboðs­gögn liggi fyrir með veiga­miklum þáttum á borð við burð­ar­virkisteikn­ingar.

Þá er lagt til að USK aðskilji hlut­verk verk­taka og bygg­inga­stjóra til að forð­ast hags­muna­á­rekstra við eft­ir­lit. Verklag við kostn­aðar- og tíma­á­ætl­anir er gagn­rýnt, auk þess sem ábend­ingar um stjórn­skipu­lag, gæða­kerfi og mönnun eru lagðar fram.

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Ekkert skrítið, eftirlitið bara í skötulíki.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár