„Öll rauð flögg upp“ í máli Bylgju

Kven­sjúk­dóma­læknir segir nið­ur­stöðu seg­u­l­ómunar sem Bylgja Babýlons fór í árið 2018 á Íslandi benda til að hún hafi verið komin með leg­hálskrabba­mein þá. „Öll rauð flögg“ hefðu þá átt að fara upp. Bylgja greind­ist með leg­hálskrabba­mein í Edinborg tæpum þremur árum síðar. Hún er að und­ir­búa form­lega kvörtun til land­læknis.

„Öll rauð flögg upp“ í máli Bylgju
Sendir kvörtun til land­læknis Bylgja seg­ist sjá mál sitt í skýr­ara ljósi þessa dag­ana og ætlar að senda land­lækni form­lega kvörtun. Mynd: Golli

Bylgja Babýlons, leik­kona og uppi­stand­ari greind­ist með leg­hálskrabba­mein í byrjun árs 2021. Það voru læknar í Edinborg, þar sem Bylgja hafði þá búið í tæp þrjú ár, sem fundu meinið.

Bylgja hafði leitað til læknis í Edinborg vegna „kunn­ug­legra verkja“ eins og hún orðar það og er þá að vísa til þess að hún hafi fundið fyrir svip­uðum verkjum í lok árs 2017 og fram á mitt ár 2018. Þá bjó hún enn á Íslandi.

Bylgja sagði sögu sína í Heim­ild­inni á dög­unum og lýsti því þar að henni hafi fund­ist verkirnir grun­sam­legir „Þetta var seið­ingur og svona þrýst­ings­verkir neð­ar­lega í kvið­ar­hol­inu,“ sagði Bylgja. 

Læknir hennar á Íslandi sendi hana í seg­u­l­ómun í mars árið 2018 og í kjöl­farið fór Bylgja í speglun þar sem tekin voru sýni úr leg­hálsi.

…
Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár