Var krabbamein í sýninu?

Bylgja Babýlons uppi­stand­ari segir ýmis­legt benda til að hún hafi fengið ranga grein­ingu úr skimun fyrir leg­hálskrabba­meini hjá Krabba­meins­fé­lag­inu árið 2018 líkt og fleiri konur. Hún greind­ist með krabba­mein rúmum tveimur árum síðar. „Ég vil bara vita hvort það liggi ein­hvers staðar sýni úr mér á Íslandi frá árinu 2018 merkt „hreint“ þegar það er í raun og veru krabba­mein í því.“

Var krabbamein í sýninu?

Bylgja Babýlons fór haustið 2020 að finna fyrir því sem hún segir að hafi verið kunn­ug­legir verkir neðst í kvið­ar­holi. Hún pant­aði tíma hjá kven­sjúk­dóma­lækni í Edinborg í Skotlandi þar sem hún bjó og býr enn. Í byrjun árs 2021 til­kynntu læknar henni að hún væri með leg­hálskrabba­mein. 

Þegar Bylgja segir „kunn­ug­legir verkir“ er hún að vísa til þess að hún hafi upp­lifað svip­aðan sárs­auka seinni hluta árs­ins 2017 og fram eftir árinu 2018. „Þetta var seið­ingur og svona þrýst­ings­verkir neð­ar­lega í kvið­ar­hol­inu,“ segir Bylgja. 

Þegar verkirnir gerðu fyrst vart við sig bjó Bylgja enn á Íslandi. Hún fór í ýmsar rann­sóknir vegna ein­kenn­anna í byrjun árs 2018. Í einni slíkri voru tekin sýni úr leg­hálsi til að hægt væri að úti­loka krabba­mein. Sýnin voru send í Leit­ar­stöð Krabba­meins­fé­lags Íslands. Nið­ur­staðan var sú að hún væri ekki með krabba­mein. Bylgja ákvað þá að láta gamlan draum um …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Thordis Malmquist skrifaði
    Hræðilegt að heyra um reynslu þína. Vona virkilega að þú getir haldið áfram og finnir fríð fyrir öllu sem hefur gengið á, verðir verkjalaus eða allavega getir fundið vellíðan. Guð veri með þér elskuleg.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár