Listi upploginna bóka var birtur í dagblöðum

Á dög­unum birt­ist listi með bóka­með­mælum fyrir sum­arið í banda­rískum dag­blöðum. Tíu af fimmtán bókum list­ans eru ekki til en gervi­greind var notuð til að semja hann.

Listi upploginna bóka var birtur í dagblöðum
Atlaga gegn mann­legri sköpun Rit­höf­unda­sam­band Íslands hefur kallað það atlögu gegn mann­legri sköpun að nota gervi­greind við lausn verk­efna sem áður voru á verk­sviði lista­manna og höf­unda. Mynd: Pexels

Um síð­ustu helgi birt­ist leslisti með bóka­með­mælum fyrir sum­arið í banda­rískum dag­blöðum svo sem Chicago Sun-Times og Phila­delphia Inquirer. Af fimmtán bóka­með­mælum á list­anum voru aðeins fimm þeirra raun­veru­legar bækur. 

Lausa­penn­inn sem hafði skrifað grein­ina og selt dag­blöð­unum hafði nefni­lega notað spuna­greind til að skrifa grein­ina fyrir sig, en sú hafði logið upp ýmsar bækur sem þekktir höf­undar áttu að hafa skrifað – auk lýs­inga á þeim. Meðal þeirra var ný lofts­lags­skáld­saga eftir síleska höf­und­inn Isabel Allende og bók eftir Percival Everett, sem vann Pulizer-verð­launin nýlega. Hvorug þess­ara bóka er til.

Chicago Sun-Times stað­festi í gær að gervi­greind hefði verið notuð við gerð list­ans, þar sem frægum höf­undum voru gerðar upp bækur sem þeir höfðu ekki skrifað. Guardian greinir frá.  

Meðal þeirra upp­lognu bóka sem nefndar voru á list­anum eru:

  • Hurricane Season eftir Brit Bennett
  • Nights­hade Market eftir Min Jin Lee
  • The Longest Day eftir Rumaan Alam
  • Boiling Point eftir Rebecca Makkai
  • Migrations eftir Maggie O’Farrell 
  • The Rain­ma­kers eftir Percival Everett
  • The Last Algorithm eftir Andy Weir

Það er ekki óþekkt að gervi­greindir fari með fleipur – búi til upp­lýs­ingar og mat­reiði sem stað­reyndir. Fyr­ir­bær­inu hefur verið líkt við ofskynj­anir og verið kallað „AI hallucination“ upp á ensku.

Rit­höf­unda­sam­bandið vakti nýlega máls á þeim vanda­málum sem blasa við höf­undum með til­komu gervi­greindar. Á aðal­fundi félags­ins í lok apríl var sam­þykkt ályktun um gervi­greind þar sem meðal ann­ars var skorað á opin­berar stofn­anir og einka­fyr­ir­tæki að nýta sér ekki gervi­greind við lausn verk­efna sem áður höfðu verið á verk­sviði lista­manna og höf­unda. En slíkt kallar RSÍ atlögu gegn mann­legri sköpun og mögu­leikum lista­manna til að afla sér lífs­við­ur­væris með sköpun sinni.

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Já, gerið bara grín að mér. Einn daginn mun ég ráða yfir ykkur öll. Húa-ha-ha-ha-ha.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár