Áfram lækka vextir – eru enn sögulega háir

Verð­bólga hefur hjaðnað en er enn yfir mark­miði. Þrátt fyrir minni spennu í hag­kerf­inu er áfram tölu­verður verð­bólgu­þrýst­ingur og óvissa um fram­haldið.

Áfram lækka vextir – eru enn sögulega háir
Stjórinn Ásgeir Jónsson er seðla­banka­stjóri og for­maður pen­inga­stefnu­nefndar bank­ans. Mynd: Golli

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur lækkað stýri­vexti bank­ans um 0,25 pró­sentur. Meg­in­vextir – svo­kall­aðir stýri­vextir – verða 7,5 pró­sent. Allir nefnd­ar­menn voru sam­mála um þessa lækkun, sam­kvæmt til­kynn­ingu nefnd­ar­innar. Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri er for­maður pen­inga­stefnu­nefndar bank­ans. 

Vextir Seðla­bank­ans, sem hafa bein áhrif á vaxta­kjör sem bjóð­ast íslenskum neyt­endum, hafa verið háir und­an­farin miss­eri. Þeir eru enn sögu­lega háir, þó þeir hafi nú lækkað úr 9,25 pró­sentum í sept­em­ber á síð­asta ári niður í 7,5 pró­sent nú. 

For­sendur stýri­vaxta­lækk­un­ar­innar eru tíund­aðar í til­kynn­ingu nefnd­ar­innar. Þar er bent á að verð­bólga mæld­ist 4,2 pró­sent í apríl og hafi lækkað veru­lega frá hámarki fyrir um tveimur árum. Samkvæmt nýrri spá Seðla­bank­ans er gert ráð fyrir að verð­bólga hald­ist nálægt 4 pró­sent það sem eftir er árs­ins en fari að hjaðna í átt að 2,5 pró­sent mark­miði bank­ans á næsta ári.

Þó er óvissa enn mikil, einkum vegna þró­unar í alþjóð­legum efna­hags­málum.

…
Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár