„Fólk þarf að muna að þetta er frí“

Dr. Drífa Björk Guð­munds­dóttir er klínískur sál­fræð­ingur. Hún segir sýni­legt daga­tal, fasta punkta yfir dag­inn og svefn geta hjálpað til við að draga úr streitu þeirra sem eru með ADHD yfir sum­ar­tím­ann.

„Fólk þarf að muna að þetta er frí“

Sumarið er komið. Þessi tími ein­kenn­ist oft af mik­illi úti­veru, sam­veru­stundum með fjöl­skyld­unni, ferðum og gleði. En sum­ar­tím­anum geta líka fylgt áskor­anir. Fyrir þau sem eru með ADHD (e. Attention Deficit Hyperactivity Disorder) getur sum­ar­tím­inn valdið streitu. 

Dr. DrífaSegir algengt að ófyr­ir­sjá­an­leik­inn á sumrin reyn­ist fólki með ADHD erf­iður. Hún mælir með að sum­ar­fríið sé und­ir­búið og mán­að­ar­yf­ir­lit sýni­legt.

Dr. Drífa Björk Guð­munds­dóttir er klínískur sál­fræð­ingur og starfar á Barna­spít­al­anum. Hún hélt á dög­unum erindi hjá ADHD-sam­tök­unum um sum­ar­fríið og ADHD. Í sam­tali við Heim­ild­ina sagði hún mik­il­vægt að fólk muni eftir því að hvíla sig og ná slökun í frí­inu.

Hvað er ADHD?

„ADHD er tauga­þroska­röskun sem ein­kenn­ist af þrenns lags ríkj­andi ein­kennum,“ segir Drífa. Ein­kennin eru athygl­is­brestur, ofvirkni og hvat­vísi. Það er ólíkt á milli ein­stak­linga hvort öll þrjú ein­kennin eru til staðar og …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár