Einkavæðing Íslandsbanka hafin á ný

Útboð á eft­ir­stand­andi hlut rík­is­ins í Íslands­banka hófst í morgun. Útboðið stendur til fimmtu­dags og ætlar ríkið að selja minnst 20 pró­senta hlut í bank­anum.

Einkavæðing Íslandsbanka hafin á ný
Til sölu Íslands­banki er til sölu í dag og á morgun. Mynd: Golli

Þriðja umferð í einka­væð­ingu Íslands­banka hófst klukkan hálf níu í morgun. Íslenska ríkið – sem á 45,2 pró­senta hlut í bank­anum – ætlar að selja að minnsta kosti 20 pró­senta hlut. Ef eft­ir­spurn verður mikil gæti farið svo að allur hlutur rík­is­isn verði seldur í þess­ari umferð. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu og útboðs­lýs­ingu sem birt hefur verið á vef stjórn­ar­ráðs­ins. 

Íslenska ríkið er langstærsti ein­staki hlut­haf­inn í bank­anum en restin af bank­anum er að uppi­stöðu í eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða. 

Þrjár til­boðs­bækur eru not­aðar í þess­ari umferð einka­væð­ing­ar­innar. Fyrsta bókin er ætluð ein­stak­lingum með íslenska kenni­tölu. Fast verð hlut­anna þar er 106,56 krónur á hlut. Tilboð ein­stak­linga í rík­is­hlut­ina þurfa að vera að lág­marki 100 þús­und krónur en að hámarki 20 millj­ónir. Mark­aðs­verð hluta í bank­anum var við lokun mark­aði í gær 114,5 krónur á hlut.

Verð bréfa í hinum til­boðs­bók­unum ræðst af eft­ir­spurn en verður ekki …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár