Eldgos hafið norðan við Grindavík

Eldgos er hafið á Sund­hnúks­gíga­röð­inni norðan við Grinda­vík.

Nálægt byggð Gossprungan sem opnaðist í kringum 11 í dag er nær byggð en fyrri sprungan sem opnaðist í morgun. Sú nýja er um fimm hundruð metrum frá ysta húsi í Grindavík.

Eldgos er hafið norðan við Grinda­vík. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Veð­ur­stof­unni. Bærinn og Bláa lónið voru rýmd í morgun eftir að jörð fór að skelfa og kviku­hlaup hófst. 

Átta manns hafa neitað að yfir­gefa heim­ili sín. 

„Þyrla Land­helg­is­gæsl­unnar fer í loftið innan skamms til þess að stað­festa nákvæma stað­setn­ingu og stærð eld­goss­ins. Nánari upp­lýs­ingar verðar aðgengi­legar fljót­lega. Flug­lita­kóði hefur verið færður á rautt, þangað til nán­ari upp­lýs­ingar um ösku­dreif­ingu ber­ast,“ segir í til­kynn­ingu frá Veð­ur­stofu.

Kvikan spýt­ist upp úr gossprung­unni rétt við varn­ar­garð­inn norðan við Grinda­vík­urbæ. Þetta má glögg­lega sjá á myndum af gos­inu. 

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár