„Það er ekkert til að verja byggðina lengur“

Hraun flæðir nú innan varn­ar­garða í Grinda­vík og ógnar byggð. Íbúum hefur verið ein­dregið ráð­lagt að yfir­gefa svæðið, en sumir neita. Ástandið er mjög alvar­legt, segir Hjördís Guð­munds­dóttir, sam­skipta­stjóri Almanna­varna. Fylgst er náið með hraun­flæði úr lofti.

„Það er ekkert til að verja byggðina lengur“
Úr lofti Svona leit gosið út úr lofti á ell­efta tím­anum. Mynd: Golli

Hjördís Guð­munds­dóttir, sam­skipta­stjóri Almanna­varna, segir ástandið mun hættu­legra nú þegar hraun er að koma upp fyrir innan varn­ar­garð­ana. „Það er ekk­ert til að verja byggð­ina lengur. Þetta er mjög slæm sviðs­mynd sem við erum að sjá,“ segir hún. 

Hjördís bendir á að það hafi verið mjög sterk til­mæli til íbúa á svæð­inu að yfir­gefa það. „Samkvæmt lög­reglu­stjór­anum eru ein­hverjir sem vildu það ekki. Það er lög­reglu­stjóri sem ber ábyrgð á rým­ingum, ekki almanna­varnir, en okkar til­mæli eru hans til­mæli: Að fólk fari úr bænum. Það sem lög­reglu­stjóri getur gert er að taka fólk með valdi en hann hefur ákveðið að gera það ekki, hingað til,“ segir hún en hefur ekki upp­lýs­ingar um fjölda íbúa á svæð­inu, eða hvort þeir síð­ustu séu mögu­lega farnir.

Starfs­maður frá almanna­vörnum er meðal …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár