„Ég fæ eiginlega kökk í hálsinn af því að tala um þetta“

Ásrún Helga Krist­ins­dóttir fékk sms í morgun um rým­ingu Grind­vík­ur­bæjar og síðan fóru við­vör­un­ar­lúðr­arnir af stað. „Grinda­vík er ekki bara staður, þetta er sam­fé­lag,“ segir hún.

„Ég fæ eiginlega kökk í hálsinn af því að tala um þetta“
Ásrún Helga Krist­ins­dótt­ir, for­seti bæj­ar­stjórn­ar Grinda­vík­ur­bæj­ar, var í bænum í morgun og fannst rým­ingin ganga vel fyrir sig.

„Ég fékk sms í morgun, síðan fóru lúðr­arnir af stað,“ segir Ásrún Helga Krist­ins­dótt­ir, for­seti bæj­ar­stjórn­ar Grinda­vík­ur­bæj­ar, sem var í bænum þegar þar var rýmt í morgun eftir að kviku­hlaup hófst á Sund­hnúks­gíga­röð­inni. Eftir að við­vör­un­ar­lúðr­arnir hljóm­uðu gengu við­bragðs­að­ilar í hús til að tryggja að allir vissu af rým­ing­unni.

„Það kom slökkvi­liðs­maður úr slökkvi­liði Grinda­víkur og mér fannst ótrú­lega nota­legt að það kom ein­hver sem ég þekkti. Ég upp­lifði þetta ekki sem neinn æsing en við fundum sterkt fyrir jarð­skjálft­unum. Það hreyfði við manni. Það var mjög stutt á milli skjálft­anna,“ segir hún. 

Veð­ur­stofan greindi frá þvi á átt­unda tím­anum í morgun að engin kvika væri komin upp á yfir­borðið en miðað við þau merki sem sáust á mælum var talið lík­legt að eld­gos hefj­ist í kjöl­farið. Til­kynn­ing um gosið barst síðan klukkan 9.44. Skömmu síðar opn­að­ist gossprunga sunnan við varn­ar­garð­inn og var Grinda­vík því ekki lengur í …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár