Ríkisstjórnin vill meira út úr tekjustofnum

Rík­is­stjórnin hyggst auka tekjur með betra eft­ir­liti með skatt­skilum og færri und­an­þágum, en leggur fyrst og fremst áherslu á aðhald. Þetta kemur fram í frum­varpi að nýrri fjár­mála­á­ætlun.

Ríkisstjórnin vill meira út úr tekjustofnum

Rík­is­stjórnin telur að tæki­færi séu til staðar til að ná meira út úr þeim tekju­stofnum sem þegar eru til staðar. Það megi til dæmis gera með því að fækka íviln­andi úrræðum og koma í veg fyrir skatta­snið­göngu. Fullyrt er að þetta þurfi ekki að koma niður á heim­ilum og ein­stak­lingum.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í frum­varpi að nýrri fjár­má­l­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar, sem birt var í morgun og Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­hera kynnti á blaða­manna­fundi. 

Bæta eftirlit með skattskilum

„Á tíma fjár­mála­stefn­unnar er ætl­unin að efla skatt­skil, loka glu­fum og draga úr und­an­þágum í skatt­kerf­inu.“ segir í grein­ar­gerð frum­varps­ins. „Jafn­framt er brýnt að bregð­ast mark­visst við skatt­und­anskotum með öfl­ugu raun­tíma­eft­ir­liti sem byggir á áhættu­grein­ingu og aðgerðum gegn pen­inga­þvætti.“

Nota á gervi­greind og aðra tækni til að auð­velda þetta eft­ir­lit. 

Þá á einnig að bregð­ast við þeirri þróun sem fjölgun vist­vænna og spar­neyt­inna …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Frábært mál og þetta kemur almenningi við. Það eiga allir að borga sína skatta vafningalaust.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár