Mannskæðustu árásir Ísraels á Gaza síðan vopnahlé hófst

Ísrael hefur hafið umfangs­mestu árásir sínar á Gaza frá því að vopna­hlé tók gildi og heitir því að halda áfram átökum þar til allir gíslar eru leystir úr haldi. Hamas for­dæmir aðgerð­irnar og varar við hörmu­legum afleið­ingum. Fleiri en 330 hafa verið drepnir í árásum Ísra­els­hers.

Mannskæðustu árásir Ísraels á Gaza síðan vopnahlé hófst
Á flótta Palest­ínsk kona ber ung­barn á meðan fjöl­skyldur yfir­gefa aust­ur­hluta Gasa­svæð­is­ins, nálægt landa­mærum Ísraels, eftir loft­árásir Ísraels sem beindust að norð­ur­hluta og öðrum svæðum Gaza nýliðna nótt. Mynd: Bashar TALEB / AFP

Ísrael hét á þriðju­dag að halda áfram hern­að­ar­að­gerðum á Gaza þar til allir gíslar væru leystir úr haldi, en á sama tíma hóf það mann­skæð­ustu loft­árásir sínar frá því að vopna­hlé tók gildi. Heil­brigð­is­ráðu­neytið á Gaza, sem er undir stjórn Hamas, greindi frá því að yfir 330 manns hefðu látið lífið.

Hamas sak­aði Benjamin Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, um að hafa tekið ákvörðun um að „hefja stríð á ný“ eftir að við­ræður um fram­leng­ingu vopna­hlés­ins stöðv­uð­ust. Samtökin vör­uðu við því að end­ur­nýjuð átök gætu orðið „dauða­dómur“ yfir þeim gíslum sem enn eru á lífi á Gaza.

Hvíta húsið stað­festi að Ísrael hefði ráð­fært sig við rík­is­stjórn Donalds Trumps, for­seta Banda­ríkj­anna, áður en loft­árás­irnar hófust. Heil­brigð­is­ráðu­neytið á Gaza sagði að meiri­hluti þeirra sem lét­ust í árás­unum væru konur og börn.

Skrif­stofa Net­anyahu sagði að árás­irnar hefðu verið fyr­ir­skip­aðar eftir „ítrek­aða höfnun Hamas á að sleppa gíslum okkar, auk þess sem sam­tökin höfn­uðu …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár