Ljúfsár tapræða breyttist í sigurræðu

Víkingur Heiðar Ólafsson vann til Grammy-verð­launa fyrir plötu sína þar sem hann flytur Goldberg-til­brigði Bachs. Hann fylgd­ist með verð­launa­há­tíð­inni í heima­húsi í Berlín þar sem hann fagn­aði nýjum útgáfu­samn­ingi við Uni­ver­sal og Deutche Gramm­ophon. Hann var búinn að und­ir­búa ljúfsára tapræðu sem hann snar­aði yfir í sig­ur­ræðu á örskots­stundu.

Ljúfsár tapræða breyttist í sigurræðu
Við­ur­kenn­ing Víkingur Heiðar Ólafsson á tón­leikum í Hörpu í októ­ber. Hann vann til Grammy-verð­launa sem afhent voru í gær fyrir plötu sína þar sem hann flytur Golberg-til­brigðin eftir Johann Sebast­ian Bach. Mynd: Mummi Lú

Ég er bara hérna í smá göngutúr með kon­unni minni, Höllu, við erum í Berlín og vorum að fá okkur rót­sterkt og gott kaffi af því að við sváfum ekk­ert rosa­lega mikið í nótt,“ segir Víkingur Heiðar Ólafsson, píanisti og nýbak­aður Grammy-verð­launa­hafi. 

Grammy-verð­launin fóru fram í 67. sinn í Los Angeles í gær í skugga gróð­ur­elda sem hafa geisað í Kali­forníu síð­ustu vikur. Víkingur er á tón­leika­ferða­lagi um Evr­ópu og horfði á Grammy-verð­launin í Berlín heima hjá for­stjóra Deutche Gramm­ophon ásamt yf­ir­mönn­um hjá út­gáfu­fyr­ir­tæk­inu Uni­ver­sal. Víkingur hefði vissu­lega viljað vera við­staddur en aðstæður leyfðu það hrein­lega ekki. „Það er svo mikið sorg­ar­á­stand í Los Angeles vegna eld­anna sem hafa farið illa með fólk. Grammy-verð­launin voru allt öðru­vísi í ár en hefur verið. Við ákváðum á end­anum að fagna þessu í Berlín,“ segir hann, en öll­um við­burðum á veg­um út­gáfu­fyr­ir­tæk­isins hefur verið af­lýst.

Víkingur var til­nefndur í flokki klass­ískra ein­leiks­hljóð­færa­leik­ara fyrir plötu sína þar sem hann leikur Goldberg-til­brigði Johanns Sebast­i­ans Bachs, sem gefin er út af þýska útgáfu­fyr­ir­tæk­inu Deutsche Gramm­ophon. Auk hans voru Andy Akiho, Curtis J Stewart, James Blachly & Experiential Orchestra, Mak Grgić & Ensemble Dissonance og Seth Parker Woods til­nefndir.

Puntkurinn yfir i-ið

Víkingur og Halla snæddu kvöld­verð heima hjá for­stjóra Deutche Gramm­ophon og fögn­uðu í leið­inni nýjum útgáfu­samn­ingi hans við Uni­ver­sal og Deutche Gramm­ophon. „Svo kveiktum við á sjón­varp­inu klukkan eitt eftir mið­nætti til að athuga hvernig þetta færi en ég var til­bú­inn að tapa. Þannig varð sig­ur­inn ennþá sæt­ari fyrir vikið. Þetta var geggjað kvöld,“ segir Víkingur. Í raun hélt hann sína eigin litlu verð­launa­há­tíð í heima­húsi í Berlín. „Grammy-hátíð í ynd­is­legu húsi og í ótrú­lega góðra vina hópi og sam­starfs­manna. Þetta var stór­kost­legt.“

Verð­launa­hafiVíkingur Heiðar var til­nefndur í flokki klass­ískra ein­leiks­hljóð­færa­leik­ara og eru þetta hans fyrstu Grammy-verð­laun.

Þakklæti er honum efst í huga. „Þetta er í fyrsta sinn sem ég er til­nefndur til Grammy-verð­launa og ég var búinn að búa mig undir von­brigðin að vinna ekki. Ég átti ekki von á að vinna. Þetta er stórt fyrir mig. Ég var á tón­leika­ferða­lagi í heilt ár að spila Goldberg-til­brigðin sem fyrir mér er stór­kost­leg­asta tón­verk tón­list­ar­sög­unnar, að minnsta kosti sem ég þekki. Að fá að eiga þennan tíma með þessu verki í heilt ár, spila um öll Banda­ríkin og um allan heim, þá kemur þetta núna eins og punkt­ur­inn yfir i-ið. Þetta er bara dásam­legt.“

„Það að vinna verð­laun hefur nú aldrei hjálpað neinum að gera betri músík. En það þarf ekki endi­lega að skemma fyrir“
Víkingur Heiðar Ólafsson
(sig­ur­ræðan sem hann flutti í heima­húsi í Berlín þegar ljóst var að hann vann til Grammy-verð­launa)

Víkingur und­ir­bjó ekki sig­ur­ræðu í þetta sinn, hann segir nógu margar slíkar hafa farið í ruslið í gegnum tíð­ina. „Ég var búin að und­ir­búa ljúfsára tapræðu í hug­anum en svo þurfti ég að segja nokkur orð í stof­unni. Ræðan var ein­föld: „Það að vinna verð­laun hefur nú aldrei hjálpað neinum að gera betri músík“. En svo bætti ég við sig­ur­ræð­una: „En það þarf ekki endi­lega að skemma fyrir“. Þannig þetta var mín stutta ræða til þeirra,“ segir hann og hlær. 

Platan kom út fyrir rúmu ári og hefur Víkingur ferð­ast vítt og breitt um heim­inn og flutt til­brigðin í heild sinni á tón­leikum, alls 96 sinnum. „Þetta var ævin­týra­legt ár og það hefur verið ótrú­legt að kynn­ast sjálfum mér í gegnum þessa tón­list. Tónlist Bachs verður alltaf að spegla, bæði fyrir þá sem spila hana og þá sem hlusta á hana.“

Vildi óska að Bach væri á lífi í dag

Að flytja Goldberg-til­brigðin meira og minna í heilt ár hefur kennt honum fjöl­margt um sjálfan sig. „Sem og um sköp­un­ina í tón­list og hvernig stór­kost­legt verk eins og þetta er aldrei eins tvö kvöld, hvað það breyt­ist mikið og hvað við erum ólík frá degi til dags. Og eigum að vera það og eigum að fagna því að þannig er það.“ Víkingur er einnig þakk­látur fyrir að hafa fengið að upp­lifa Bach, bæði sem píanisti en líka sem mann­eskja. „Hvaða áhrif Bach hefur á fólk úr ólík­ustu menn­ing­ar­heimum og hvað hann talar sterkt til fólks. Eina sem ég vildi væri að hann vissi í dag hversu yfir­gengi­lega mikla hlustun tón­list hans hefur hjá ólík­ustu hópum af fólki. Það er svo fal­legt.“ 

Hlust­enda­hópur Víkings und­an­farið ár er mjög fjöl­breyttur, allt frá ungu fólki yfir í eldra fólk, úr öllum þjóð­fé­lags­hópum. Hann tekur dæmi. „Í Boston þegar ég spil­aði verkið þar var ég stopp­aður af örygg­is­verði á flug­vell­inum, ég hélt að hann ætl­aði að taka mig í gegn fyrir að hafa gleymt vatns­brúsa eða eitt­hvað, en þá hafði hann verið að hlusta á Golberg-til­brigðin á tón­leikum hjá mér kvöldið áður. Þetta er ein saga af mörgum hvernig Bach talar til breiðs fólks af fólk. Það veitir mér gleði.“

Víkingur er enn að með­taka verð­launin. Hann svaf ekki mikið í nótt. „Það fyndna í líf­inu er að þó að maður vinni verð­laun þá situr maður alltaf uppi með sjálfan sig. Svo er bara kom­inn mánu­dagur og þá er tími til að æfa sig og vinna og und­ir­búa næstu upp­töku og leita feg­urð­ar­innar.“

Með nýjum útgáfu­samn­ingi við Uni­ver­sal og Deutche Gramm­ophon ætlar Víkingur að verja meiri tíma í hljóð­ver­inu. „Ég ætla að gefa í. Ég er að reyna að finna jafn­vægið í mínu lífi, í tón­list­inni, á milli þess að ferð­ast um heim­inn og spila alla þessa tón­list­ina og til að hafa tíma til að end­ur­nýja mig og til að gera upp­götv­anir og til­raunir í hljóð­ver­inu. Þessi samn­ing­ur­inn er nákvæm­lega það sem ég vil á þessum tíma­punkti. Hann gerir mér kleift að helga mig upp­tök­unum. Það er fal­leg leið til að ná til fólks sem hefur ekki aðgengi að tón­leika­söl­unum.“


Ítar­legra við­tal við Víking Heiðar Ólafsson verður að finna í Heim­ild­inni sem kemur út á föstu­dag, 7. febr­úar. 
Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár