Næstum jafn gamall og Sighvatur í Eyvindarholti

Þegar Donald Trump tók við emb­ætti for­seta Banda­ríkj­anna á mánu­dag var hann ein­ungis 49 dögum yngri en elsti mað­ur­inn sem setið hefur á Alþingi Íslend­inga. Með emb­ætt­is­tök­unni varð Trump elsti mað­ur­inn til að taka við emb­ætti for­seta og ef hann situr út kjör­tíma­bilið skákar hann Joe Biden, en eng­inn hefur verið eldri en hann var á síð­asta degi sínum í emb­ætt­inu.

Næstum jafn gamall og Sighvatur í Eyvindarholti
Donald og Sig­hvatur Donald Trump for­seti Banda­ríkj­anna og Sig­hvatur Árnason hrepp­stjóri, sem sat á Alþingi á ofan­verðri 19. öld og inn á þá tutt­ug­ustu. Trump er svipað gam­all og Sig­hvatur var þegar hann hætti á þingi.

Donald Trump var 78 ára og 220 daga gam­all á mánu­dag­inn, er hann var á ný settur í emb­ætti Banda­ríkja­for­seta. Enginn hefur verið eldri en Trump við emb­ætt­is­töku, en þetta met hrifs­aði hann af for­vera sínum, Joe Biden, sem varð elstur til að taka við emb­ætt­inu í jan­úar 2021 og er til þessa sem hefur sinnt því. Á mánu­dag var Biden 82 ára og 61 dags gam­all.

Gaml­ingja­væð­ing banda­rískra stjórn­mála hefur vakið nokkra athygli á und­an­förnum árum. Fyrir utan for­set­ana tvo, Biden og Trump, eru margir þing­menn komnir mjög á aldur og stundum hafa vaknað spurn­ingar um getu þeirra til að sinna störfum sínum. 

Öld­unga­deildin er full af öld­ungum, þeirra elstur er Chuck Grassley, Repúblikani frá Iowa-ríki, sem er 91 árs, fæddur 1933. Bernie Sanders, þing­maður frá Vermont, er 83 ára og Mitch McConnell, Repúblikani frá Kentucky, er 82 ára. Alls þrjá­tíu og einn öld­unga­deild­ar­þing­maður til við­bótar er …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    The sparkness of Spiderman,
    the syrup of Superman,
    the homeboy of Hulk,
    the beauty of Batman,
    and the prump of Trump.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár