Sólveig Anna sendi bréf á móðurfélög Subway og Hard Rock Cafe

Félögin sem reka Subway og Hard Rock Café á Íslandi eru aðilar að SVEIT, sem Efling segir að staðið hafi fyrir stofnun gervi­stétt­ar­fé­lags til að rýra kjör starfs­manna í veit­inga­geir­anum. Sólveig Anna Jóns­dóttir for­maður félags­ins hefur nú skrifað bréf út til alþjóð­legra móð­ur­fé­laga þess­ara tveggja veit­inga­staða­keðja og beðið þau um að rann­saka starfs­hætti sér­leyf­is­haf­ana hér­lendis.

Sólveig Anna sendi bréf á móðurfélög Subway og Hard Rock Cafe
SVEIT Frá mót­mælum Eflingar við veit­inga­stað­inn Finnsson í Kringl­unni fyrr í þessum mán­uði. Mynd: Heimildin

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar stétt­ar­fé­lags, hefur sent erindi til sér­leyf­is­veit­inga­keðj­anna Subway IP LLC og Hard Rock Cafe International og vekur þar athygli „á þátt­töku sér­leyf­is­hafa þeirra hér á landi í rétt­inda­brotum gegn vinn­andi fólki, ólög­mætu athæfi og laga­brotum“, sam­kvæmt því sem segir í frétta­til­kynn­ingu frá Eflingu.

Þar kemur fram að í erind­unum bendi Sólveig Anna á að Stjarnan ehf., sér­leyf­is­hafi Subway á Íslandi, og HRC Ísland ehf., sem heldur á sér­leyfi fyrir Hard Rock Cafe á Íslandi, hafi „að lík­indum bæði tekið þátt í stofnun ólög­mæts gervi­stétt­ar­fé­lags, sem stýrt sé af atvinnu­rek­endum.“ 

Í bréf­unum biður hún erlendu móð­ur­fé­lögin um að „rann­saka“ hegðun íslensku sér­leyf­is­haf­anna til að tryggja að þeir „upp­fylli gild­andi vinnu­lög­gjöf, sem og hvers kyns sið­ferði­leg vinnu­brögð tengd fyr­ir­tæk­inu“.

Í erindum Sól­veigar Önnu út til þess­ara móð­ur­fé­laga Subway og Hard Rock Cafe á alþjóða­vísu segir meðal ann­ars: „Þó Efling geri sér grein fyrir að sér­leyf­is­hafar starfi sem sjálf­stæð ein­ing undir vöru­merki ykkar, þýða tengslin að fram­ganga þeirra gætu brugðið slæmu ljósi á orð­spor ykkar á heims­vísu.“

Barátta gegn gervikjarasamningi

Þessar bréfa­send­ingar for­manns Eflingar eru áfram­hald á þeim slag sem stétt­ar­fé­lagið hefur ráð­ist í vegna starf­semi stétt­ar­fé­lags­ins Virð­ingar og kjara­samn­ings þess við SVEIT, sam­tök fyr­ir­tækja á veit­inga­mark­aði.

Þann samn­ing segir Efling vera ólög­mætan, enda sé Virðing gervi­stétt­ar­fé­lag, stofnað af fyr­ir­tækja­eig­end­unum sjálfum í því skyni að ráð­ast gegn kjörum starfs­fólks í veit­inga­geir­anum.

Efling segir að auk þess inni­haldi samn­ing­ur­inn fjöl­mörg ákvæði sem brjóti gegn íslenskum lögum og Evr­ópu­reglu­gerðum.

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár