Stríð og blóðug átök voru í 59 ríkjum í heiminum árið 2023 og á tveimur svæðum gætu þau breiðst út og stefnt heimsbyggðinni í hættu. Á mörgum af þessum stöðum var gert ráð fyrir að vopnavaldið gæti leyst málin, svo fór ekki. Talið er að Ísraelsher hafi drepið 14.500 börn frá 7. október 2023 og sært enn fleiri. Þá er talið að 17.000 börn hafi orðið viðskila við fjölskyldur sínar og þúsundir eru enn grafin undir rústum. Sjá einnig tölur hér: Prio og Freedomhouse.
Tölurnar um árið 2023 koma fram í ársskýrslu sænsku friðarrannsóknarstofnunarinnar SIPRI. Flest dauðsföll urðu í borgarastyrjöld í Tigray-héraði í Eþíópíu, í Súdan, vegna innrásar Rússa í Úkraínu og í loftárása og innrásar Ísraelsríkis á Gaza í Palestínu. Samantekt um stríð á árinu 2024 kemur síðar en hvernig verður 2025?
Alþjóðlegt ár friðar, trausts og samvinnu
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti ályktun um að 2025 skyldi vera tileinkað friði og trausti. Í ályktuninni er skorað á alþjóða samfélagið að leysa deilur með viðræðum og samningum til að tryggja varanlegan frið og traust í samskiptum aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna.
Árið 2021 var einnig alþjóðaár friðar og traust hjá SÞ en það þótti rík ástæða til að endataka það svo fljótt aftur í stað þess að gefast upp þótt á móti blási. Árið 2021 hélt Höfði friðarsetur árlega ráðstefnu og var með málstofu um hvernig efla megi friðarmenningu með menntun í hnattrænni borgaravitund (Global Citizenship Education for Peace). Eva Harðardóttir lektor á menntavísindasviði HÍ var málstofustjóri og ég var meðal þeirra sem fluttu erindi.
Verkefni ársins 2025 er brýnt og felst meðal annars í því að þróa vináttusamband þjóða og koma í veg fyrir að næstu kynslóðir þurfi að glíma við þjáningu og dauða sem af stríðum hlýst. Getum við það?
Sameinuðu þjóðirnar tileinka einnig samvinnu og samvinnufélögum þetta ár.
Sextánda heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna er Friður og réttlæti eða að stuðla að friðsælum og sjálfbærum samfélögum fyrir allt fólk, tryggja öllum jafnan aðgang að réttarkerfi og byggja upp skilvirkar og ábyrgar stofnanir fyrir fólk á öllum sviðum. Heiðrum það markmið.
Sameinuðu þjóðirnar tileinka einnig samvinnu og samvinnufélögum þetta ár. Markmið þess er að leggja áherslu á þýðingarmikið hlutverk samvinnufélaga í sjálfbærri þróun. Árið 2025 er einnig tileinkað varðveislu jökla og skammtafræði. Allar eru þessar tileinkanir mikilvægur þáttur í því að stuðla að friði í heiminum.
Friður, traust og samvinna
Friður er ekki aðeins vopnahlé eða fjarvera átaka heldur líferni án hlekkja, landamæra, flokkunar og haturs. Og ekki aðeins það heldur staður og ástand þar sem vinátta og traust eflast og kærleikur vex. Þar sem við fáum öll að vera manneskjur.
Jafnvel þótt kynnt sé undir ófriðarbál í heiminum um þessar mundir og vopnaframleiðendur hugsi sér gott til glóðarinnar, þá er engin ástæða til að hætta að styrkja friðarmenningu og efla traust og samvinnu milli þjóða.
Né að hætta að knýja valdhafa í Rússlandi og Ísrael með öllum tiltækum ráðum til binda strax enda á ólöglegan stríðsrekstur í Úkraínu og Palestínu. Mótmæli almennings eru líka öflug. Við getum til dæmis sniðgengið vörur frá þessum löndum, við getum beitt okkur á margvíslegan hátt án þess að grípa til ofbeldis og haft víðtæk áhrif.
Alþjóðadómstólarnir ICJ og ICC, öll helstu alþjóðlegu mannréttindasamtökin, Amnesty International, Human Rights Watch, B'T Selem ásamt Samtökum lækna án landamæra, hafa þegar tekið afstöðu gegn aðgerðum Ísraels, gegn þjóðarmorði, gegn þjóðernishreinsunum, gegn aðskilnaðarstefnu, gegn glæpum gegn mannkyni, gegn drápum á börnum.
Friðarmenningu fylgir líferni þar sem fólk tileinkar sér æðruleysi og örlæti. Hún felst í því að koma í veg fyrir aðskilnað, heift, heimsku og að draga hvarvetna úr líkum á félagslegu óréttlæti. Á alþjóðaári friðar og trausts SÞ er nauðsynlegt að fræða um þessi gildi og vakna til vitundar um þau.
Hvað getum við gert? Ekki líta undan, ekki gefast upp á að vera friðflytjendur, eflum hnattræna borgaravitund og virkjum almenna borgara til aðgerða án ofbeldis, styðjum samvinnu félaga sem beita friðsamlegum aðferðum. Veljum leiðir til að til þess að auka samkennd milli ólíkra einstaklinga og efla gagnrýna hugsun.
Ekki þegja, mótmælum stríði
Núna er eins og undirbúningur fyrir næstu heimstyrjöld standi yfir og að hún muni breiðast út vegna ófriðar í Evrópu og Miðausturlöndum. Vopnaframleiðsla eykst, þjóðir ganga í NATÓ og auka varnir og eftirlit. Samstarf eykst í her- og varnarmálum, friðurinn er vanræktur og glæpur gegn mannkyni látinn viðgangast.
Við þurfum að segja eitthvað og gera eitthvað til að halda hugsjóninni um frið á lofti. „Við erum ekki alveg viss um hvort að orð geti bjargað lífi, en vitum fyrir víst að þögn getur vissulega drepið,“ sagði James Orbinski sem tók eitt árið við friðarverðlaunum Nóbels fyrir hönd Lækna á landamæra. Við þurfum að mótmæla kröftuglega, tala meira um frið og traust, rannsaka þau, skrifa um þau, læra þau og miðla þeim til annarra.
Friðarmenning er ekki vopnahlé eða ógnarjafnvægi. Hún er mennska, tengsl
Friðarmenning felst í því að hlúa að veikustu þáttum samfélagsins og ráðast að rótum vandans sem oft er falinn í fátækt, óréttlæti, efnahagslegu misrétti, pólitík og félagslegum aðstæðum sem vekja hatur, deilur og ofbeldi. Vinnum að því! Friðarmenning er ekki vopnahlé eða ógnarjafnvægi. Hún er mennska, tengsl. Vopnahlé er fyrsta skrefið.
Við eigum að vinna saman og hjálpa hvert öðru í lífi og starfi á jafnréttisgrunni, þar sem atkvæðaréttur er jafn og skipting ávinnings er jöfn. Við viljum vera á þeim stað, en ekki að ógna og kúga.
Hvað segir Kant?
Hvað sagði Immanuel Kant sem átti 300 ára fæðingarafmæli árið 2024 um frið? Nú getum við lesið það á íslensku því bókin Fyrir eilífum friði eftir Kant er nýtt lærdómsrit Bókmenntafélagsins, í þýðingu Egils Arnarsonar. Í inngangi skrifar Emma Björg Eyjólfsdóttur í anda Kants:
„Mannkyn allt er eitt samfélag og við höfum skyldur hvert gagnvart öðru.“ (bls. 24).
Kant hafði einnig trú á friðsamlegri samvinnu ríkja í þágu allra og það sé öllum í hag að lúta alþjóðalögum. Verkefnið er að tryggja að við getum „lifað saman í samfélagi án þess að ganga á frelsi hvert annars.“ (26).
Friður er langtímaverkefni sem við megum aldrei missa sjónar á. Þótt mörgum finnist ólíklegt að varanlegur friður muni ríkja á jörðu, þá eru skilyrðin samt fyrir hendi og það er hægt að vinna að þeim: að friður haldist innan hvers ríkis, samskipti ríkja verði friðsamleg og samskipti borgara milli ríkja séu vinsamleg.
Emma Björg færir rök fyrir því að rit Kants Fyrir eilífum friði, hafi haft mikil áhrif þegar stofnsamþykktir Sameinuðu þjóðanna voru skrifaðar, meðal annars um hvernig ganga skuli til friðarsamninga af heilum hug. Okkur ber siðferðileg skylda til að haga skipulagi alþjóðasamskipta í þeim anda að það stuðli að friði (53).
Tilmæli SÞ og áskorun til alþjóða samfélagsins um að leysa deilur með viðræðum og samningum til að tryggja varanlegan frið og traust eru í anda Kants.
Kant lýsir sex byrjunarákvæðum friðar. Þau eru einföld og kveða á um hvað við megum ekki gera: Ekki setja fyrirvara um mögulegt stríð í friðarsamning. Ekkert ríki má eignast annað ríki. Fastaherir skulu lagðir af. Ekki stofna til skulda vegna milliríkjadeilna. Ekki hlutast til um innanríkismál annars ríkis. Ekki heimila hernaðaraðgerðir sem grafa undan trausti á friðartímum.
Hlutverk Íslands að tala fyrir friði
Við getum á þessu ári eflt traust, aflað friðarmenningu fylgist og unnið saman að lausnum, mótmælt og sniðgengið. Við getum ekki setið hjá og beðið. Það er of mikið í húfi, því svo virðist sem við ræktum fremur stríðsmenningu en friðarmenningu. Ógnin vex og hernaðarbandalögin stækka um stundarsakir. Þrátt fyrir það er það en skilyrðislaus skylda Íslands að tala fyrir eilífum friði í heiminum – eins og Kant gerði.
Athugasemdir