30 prósenta verðmunur á sumum vörum

Verðlags­eftirlit ASÍ sýnír mikinn verðmun á sumum vörum á milli verslana þó munurinn sé minni á milli lágvöru­verslana. Matar­karfan var 8 þúsund krónum ódýrari í lágvöru­verslun.

Matvöruverslun
Mat­vöru­verslun Miklu getur munað í verði eftir því í hvaða verslun fólk stundar inn­kaupin. Mynd: AFP

Allt að 30 prósenta munur getur verið á vörum á milli verslana. Verðmunur er gjarnan minni í lágvöruverslunum, eða á milli 5 til 10 prósent frá lægsta verði.

Þetta kemur fram í niður­stöðum verðlags­eftirlits Alþýðu­sambands Íslands (ASÍ). „Niður­stöðurnar undir­strika að neytendur geta sparað umtals­verðar fjárhæðir með því að bera saman verð milli verslana,“ segir í tilkynningu frá ASÍ.

Lægsta verðið er að finna í Prís en þar á eftir fylgja Bónus og Krónan. „Að jafnaði var verð á vörum í Bónus um 5,5% hærra en þar sem varan fékkst á lægsta verði, sem í nær öllum tilfellum var í Prís. Verð á vörum í Krónunni var að jafnaði 6% hærra og Nettó um 11% hærra,“ segir í tilkynningunni.

Verðlags­eftirlitið kannaði verð á matvöru dagana 8. til 14. júní í níu verslunum, það er Bónus, Krónunni, Nettó, Hagkaupum, Kram­búðinni, Kjör­búðinni, Fjarðar­kaupum, Prís og SPAR.

Tæplega 8 …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár